
Ef ég get einhvertíma sagt að ég sé þjakaður af "fyrirtíðaspennu" þá er það fyrir leiki Liverpool í Meistaradeildinni.
Auðvitað er hér ekki um eiginlega fyrirtíðaspennu að ræða, enda er ég ekki kelling sem hefur á klæðum, en á leikdag í Meistaradeild þá byrja ég að nötra og fæ jafnvel smá svitaköst, mjög svo "ala" fyrirtíðaspenna.
Mínir menn, hinir rauðklæddu frá Bítlaborginni hafa auðvitað náð mjög góðum árangri í Meistaradeildinni undanfarin ár, eða frá því að Rafa Benitez tók við liðinu.
Rafa hefur komið liðinu í fjögurra liða úrslit alltaf utan einu sinni eftir að hann tók við af Houllier, tvisvar komumst við í úrslitaleikinn sjálfan og unnum hann í eitt skiptið og var það í fimmta sinn sem Liverpool vinna þá dollu og unnu hana sér því til eignar árið 2005.
En nú á dögum er það aðallega tvennt sem hægt er að bóka í þáttöku Liverpool í Meistaradeildinni og það er að Liverpool þarf alltaf að fara dramatískan Fjallabak þannig að fjárfesting í hjartastuðtæki hefur verið margíhuguð og svo hitt að til að komast í úrslitaleikinn þarf nauðsynlega að mæta Chelsea.
Sem betur fer hefur þetta ekki reynst vandamál hingað til, en svo mun örugglega ekki alltaf verða, kannski er kominn tími á Unkel Fester að stýra Chelsea lengra en mótorkjafturinn MoaningHo gat.
Eitt er víst að ósk mín um öruggan 3-0 sigur í kvöld rætist tæplega, og þar með von mín um stress fría viðureign svona einu sinni, nei 0-0 eða 1-1 er mun líklegra og þarf þá mitt lið að kippa út enn einu kraftaverkinu til að komast í úrslitaleikinn.
Sjáum til.
Y.N.W.A !
2 ummæli:
held að það sé best að segja ekkert fyrr en eftir alla leikina ;-)
M3
Hvaða speki er það?
Á maður bara að halda kj þangað til að einhver lyftir dollunni?
Heldur þú að sú staðreynd að ég bloggaði um leikinn hafi valdið því að svona fór?
: )
Trelleley
Reyndar er svolítið merkilegt hversu rosalega ég hitti naglann á hausinn í þessari færslu annars : )
Þekki mína menn.
Áfram Barcelona : )
Skrifa ummæli