Í gærkveld náði ég að horfa á Trúðinn sem var sýndur síðasta fimmtudag á Rúv.
Eins og vanalega var þessi þáttur fyndinn og fullur af vandræðalegum augnablikum, en ekkert var þó eins vandræðalegt eins og sú angist sem fyllti mig þegar þátturinn hófst og var án texta í c.a. 2-3 mín!
Ég er algerlega handónýtur á danska tungu, fyrir utan svona einstaka orð sem ég hef þurft að nota gríðar mikið þegar ég hef verið í baunalandi eins og t.d. "jegre" og "únskúld", en þessi orð voru bara nánast ekkert notuð á þessum fyrstu mínútum þáttarins.
Ég vona að þetta gerist ekki aftur, ég myndi bara ekki þola að missa svona heyrnina yfir uppáhalds þættinum mínum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli