Sem sannur þykkbæingur þá finnst mér saltað hrossakjöt gríðar gott en borða það samt einkennilega sjaldan, af hverju ætli það sé ?
Í gærkveld kom tengdaafi minn í mat til okkar í Geislann og bauð ég upp á téðan rétt með jafningi, Ora grænum og soðnum kartöflum frá Brekku í Þykkvabæ, alger snilld.
Eftir að máltíðinni lauk spurði ég sjálfan mig, hvers vegna elda ég ekki oftar þennan fína mat?
Ketið er ódýrt, einfalt í matreiðslu og alveg yndislega gott.
Það er einmitt helst að ég kaupi hrossakjöt þegar ég á von á afa Nonna í mat, líklega finnst mér viðeigandi að bjóða fullorðnum manni upp á svona "gamaldags" mat, ég veit samt ekki.
En ef svo er þá er alveg ljóst við verðum að fá hann oftar í mat.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli