Fékk áðan sendan lista yfir drengja og stúlkna nöfn sem mannanafnanefnd hefur gúdderað, alltaf skemmtileg lesning það.
Þá rifjast upp fyrir mér smá saga:
Ég er að vinna með náunga einum sem heitir Eylífur Friður : )
Er ekki að grínast, frábær gaur frá Columbiu sem fluttist hingað fyrir c.a. 20 árum síðan. Loks eftir tilskilin árafjölda sem íbúi landsins sótti hann um íslenskt ríkisfang, sem hann fékk en honum líkaði ekki það asnalega kerfi þar sem útlendingar voru þvingaðir til að taka upp íslenskt nafn þannig að þá tók hann sér þetta nafn : )
Þetta vakti svo mikla athygli að þessi regla var lögð niður fljótlega á eftir.
Fyrst ætlaði hann reyndar að taka sér nafnið Ljótur Bolli en hætti við til að börnin hans yrðu ekki Ljótsbörn.
Alveg satt.
1 ummæli:
hehe... snilld!
M2
Skrifa ummæli