Markaðsfræðasnillingarnir hjá 365 Viðurstyggðum hafa nú kokkað upp nýtt trix til að skerpa á ímynd fyrirtækisins, nú er búið að leggja niður Sýn sem hefur í áraraðir verið sú stöð sem best hefur sinnt íþróttum og hefði ég haldið að Sýn ein og sér væri með betra "repp" restin af ruslinu sem Viðurstyggðirnar bjóða uppá....en nei.......sjónvarpsstöðin Sýn heitir nú Stöð 2 Sport og Sýn 2 heitir Stöð 2 Sport2 en Sirkus heitir Stöð 2 Extra!
Stöð 2 Sport2 er rosalega þjált heiti á íþróttastöð : )
Til lukku 365, þið klikkið ekki frekar en vanalega.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli