Í dag var fjallað um typpalengingartæki sem ku framkvæma stórkostlega hluti fyrir lítil typpi í dægurmálaþættinum á Rás 2.
Tæki þetta sem er einhverskonar pumpa sem teygir á tyllanum, og við endurtekna notkun í vikur eða mánuði ku félaginn lengjast um 3-7 cm!
Ekki bara það heldur verður hann breiðari, eigandi hans mun fá betri fullnægingar og sprauta meiru úr honum við fullnægingu, ja há!
Kynfræðingar hafa mótmælt því hvernig þetta tæki er auglýst og vilja meina að árangurinn, ef einhver er verði ekki varanlegur.
En ég var að velta fyrir mér af hverju er þessi einstaka vara tekin fyrir þegar auglýsinga tímar eru fullir af hæpnum loforðum.
Hér eru nokkur dæmi:
Nivea auglýsir grennandi krem sem á að minnka ummál um 3 cm á nokkrum vikum.
Endalausar snyrtivörur sem eyða hrukkum, margfalda lengd augnhára o.s.f.v.
Harpic vill selja okkur salernishreinsistein sem skilar sóðakamri sem skínandi Gustafsberg, eins má telja allar hreinsiefna auglýsingar, þvottaefni uppþvottaefni.
Cilit Bang t.d. er algert kraftaverkaefni sem eyðir motorolíu eins og ekkert sé:
Svona má lengi telja.
Þess vegna væri gaman að fá að vita hver er í raun ábyrgð seljanda?
Má bara fullyrða hvað sem er um vöruna og jafnvel láta duga ósýnilegan texta sem bregður fyrir í augnablik á skjánum?
Maður bara spyr.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli