Vörubílstjórar hafa teppt umferð um Miklubraut og Kringlumýrarbraut í Reykjavík og öllum akbrautum í Ártúnsbrekku til að mótmæla háu eldsneytisverði. Í gær lokuðu þeir Ártúnsbrekkunni í rúman hálftíma á háannatíma. Slökkviliðsstjóri gagnrýndi aðgerðirnar harkalega, ekkert samráð hefði verið haft við slökkvilið og því hefðu vörubílstjórarnir skapað hættuástand í borginni. Kjaftæði!
Sturla Jónsson, eigandi Smágröfuleigunnar og vörubílsstjóri, segir ekkert nema skæruaðgerðir duga gegn auknum álögum á bifreiðastjóra. Hann segir að stjórnvöld verði að bregaðst við kröfum þeirra.
Sturla gefur lítið fyrir gagnrýni slökkviliðsstjóra, málið snúist um hvort vörubílsstjórar geti lifað í landinu. Hann segir að menn verði að hætta að væla og hefja skæruaðgerðir.
Lögreglan segist fylgjast vel með þessu máli og vonast til þess að vörubílstjórar sýni skynsemi, og taki mið af varnaðarorðum um að skapast geti almannahætta þegar vegum er lokað eins og gerðist í gær. Af gefnu tilefni þá vill vörubílastöðin Þróttur koma á framfæri að bílstjórar á hennar vegum taka ekki þátt í mótmælunum.
Um leið og einhverjir reyna að spyrna við fótum á móti þessari kúgun sem hefur tíðkast hér í áratugi þá kemur umm svona skæl!
Mikið vona ég að vörubílstjórar haldi áfram mótmælunum, best væri ef þeir notuðu nokkra trukka til að sturta rusli fyrir frama alþingishúsið, það væri flott........rusl inni, rusl úti.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli