Þessi hljómsveit fékk þó nokkra athygli í eftirgæsunarteytinu í gærkveld.
Snilldar band.
30.3.08
Nouvelle Vague - Love will tear us apart (LIVE)
Þynnka!
Hvað um það, þetta er það sem maður hefur fyrir að marinera sjálfan sig í áfengi í 16 klukkutíma.
En það sem er aðal hér er að gæsun Bjarna gekk vel og skilur eftir sig skemmtilegan dag með vinunum.
Algerlega þynnkunar virði.
Orð dagsins: Lifrur : )
29.3.08
The Hamiltons Trailer
Þessi mynd er partur af hópi mynda sem voru partur af Horror Fest í fyrra eins hinar hérna á undan, og er ekkert skárri en hinar.
Einkunn 2/10
The Other Side movie trailer
Æji, stundum horfir maður á myndir í þeirri von að þarna sé á ferðinni kúl stuff, lengra frá því verður ekki komist í þessu tilfelli : )
Byrjar ágætlega, en fellur svo í b, og svo c og svo er hún búinn sem betur fer.
Einkunn 2/10
Penny Dreadful (2006)
Ég satt best að segja mundi ekki eftir að hafa séð þessa mynd fyrr en ég sá þennan trailer, þá mundi ég að eftir svona klukkutíma var ég farinn að hraðspóla að mestu leiti.
Einkunn 2/10
28.3.08
Húrra fyrir vörubílstjórum!
Sturla Jónsson, eigandi Smágröfuleigunnar og vörubílsstjóri, segir ekkert nema skæruaðgerðir duga gegn auknum álögum á bifreiðastjóra. Hann segir að stjórnvöld verði að bregaðst við kröfum þeirra.
Sturla gefur lítið fyrir gagnrýni slökkviliðsstjóra, málið snúist um hvort vörubílsstjórar geti lifað í landinu. Hann segir að menn verði að hætta að væla og hefja skæruaðgerðir.
Lögreglan segist fylgjast vel með þessu máli og vonast til þess að vörubílstjórar sýni skynsemi, og taki mið af varnaðarorðum um að skapast geti almannahætta þegar vegum er lokað eins og gerðist í gær. Af gefnu tilefni þá vill vörubílastöðin Þróttur koma á framfæri að bílstjórar á hennar vegum taka ekki þátt í mótmælunum.
Um leið og einhverjir reyna að spyrna við fótum á móti þessari kúgun sem hefur tíðkast hér í áratugi þá kemur umm svona skæl!
Mikið vona ég að vörubílstjórar haldi áfram mótmælunum, best væri ef þeir notuðu nokkra trukka til að sturta rusli fyrir frama alþingishúsið, það væri flott........rusl inni, rusl úti.
Lifi frelsið!
Ekki viðurkenning á frelsinu en sigur nördanna yfir blóðsjúgandi milliliðum engu að síður staðreynd : )
27.3.08
Eylífur Friður
Þá rifjast upp fyrir mér smá saga:
Ég er að vinna með náunga einum sem heitir Eylífur Friður : )
Er ekki að grínast, frábær gaur frá Columbiu sem fluttist hingað fyrir c.a. 20 árum síðan. Loks eftir tilskilin árafjölda sem íbúi landsins sótti hann um íslenskt ríkisfang, sem hann fékk en honum líkaði ekki það asnalega kerfi þar sem útlendingar voru þvingaðir til að taka upp íslenskt nafn þannig að þá tók hann sér þetta nafn : )
Þetta vakti svo mikla athygli að þessi regla var lögð niður fljótlega á eftir.
Fyrst ætlaði hann reyndar að taka sér nafnið Ljótur Bolli en hætti við til að börnin hans yrðu ekki Ljótsbörn.
Alveg satt.
Svona á að skræla kartöflu.
Í tilefni þess að núna er ár kartöflunar finnst mér við hæfi að sýna ykkur þetta.
Bíó: Resident Evil: Extinction (2007)
Þriðja myndin í þessari seríu og sú fjórða á leiðinni.
Milla Jovovic er alltaf töff en það dugar ekki í þetta skiptið.
Einkunn: 6/10
Bíó: Hostel Part II (2007)
Framhalds mynd sem er eiginlega bara alveg eins og sú fyrri nema nýjar píninga aðferðir.
Einkunn: 6/10
26.3.08
25.3.08
Fyrsti í orlofi.
Gaman að því : )
24.3.08
Merk tímamót!
22.3.08
Brandari
Starfsmaður bankans, segir vid hana, að bankinn þurfi að hafa einhverskonar tryggingu fyrir láninu. Hún afhendir honum, lyklanna að einum, alveg splinter nýum Bens, sem stendur út á bifreiðastæði, utan við bankann. Þetta virkar fínt, og bankinn samþykkir bílinn, sem bankatryggingu að láninu.
Bankastarfsmaðurinn og aðrir innan bankans eru virkilega stoltir, yfir blondí, að hún skuli stilla upp með einn nýan Bens, að verðmæti fyrir 18-millj, sem öryggi fyrir 50.000 kr.
Starfsmaðurinn keyrir bílnum niður í bílageymslu bankans.
Tveimur vikum seinna kemur blondí aftur, og borgar sínar 50.000 kr, plús 310 kr í vexti. Bankamaðurinn segir vid hana “við erum virkilega ánægðir, með að þú sóttir um lán hjá okkur” En við erum allir pínulítið forvitnir….meðan þú varst í burtu, þá athuguðum við þig, og komust að því, að þú ert margfaldur milljóner. Það sem undrar okkur, hversvegna, vildirðu, 50.000 kr lán???
Blondí svarar: “Hvar annarstaðar en í Reykjavík, get ég geymt minn bíl, í tvær vikur, fyrir 310 kr”
20.3.08
Páskafrí og orlof í framhaldi af því.
Let the good times begin!
19.3.08
Fátt er svo með öllu illt..............
Hún hafði víst reynt að meika það í heil tvö ár en án árangurs, en nú gengur henni allt í haginn, Playboy býður henni gull og gimsteina fyrir að bera sig í blaðinu, myspace síðan hennar er að drukkna í heimsóknum og plötuútgefendur keppast við að bjóða henni samning.
Ég er nokkuð viss um að hér er komin hóra sem fílar sig ekki sem fórnarlamb, annað mál með Eliot : )
17.3.08
16.3.08
Ísland 3 - 0 Færeyjar
En hvað mættu margir á völlinn til að horfa á dýrðina?
400 manns og var stór hluti sá hóps með boðasmiða því erfiðlega gekk að selja inn....ha!?
15.3.08
Nólsoy
Ég rakst á þetta fallega myndband frá Færeyjum, mín fyrsta hugun þegar hallærið löðrungaði mig var, þetta er örugglega gamallt, en nei, í myndbandinu bregður fyrir dreng í nokkuð nýlegum Real Madrid bol þannig að þar fór það.
Ég held nú samt að þetta sé tekið í einhverju þorpi þar sem íbúarnir eru ekki búnir að stilla klukkuna á nútímann.
En verulega hressandi slagari hér á ferð.
Enjoy.
Og aftur að miðaverði!
Ekki er ég hissa á að illa gangi að trekkja inn á Bo Hall og félaga stæla bítlana fyrir 9000kr! Veruleikafyrring einhver?
En hvernig skyldi miðasalan ganga á Eagles heiðurstónleikana í næstu viku? Þar kostar miðinn litlar 5.900 krónur! Og nákvæmlega sama gengið sem kemur fram þar!
Eru Jón Ó og félagar búnir að finna nýja uppsprettu meðalmennskunar?
14.3.08
Áfram um miðaverð!
Og hvað kostar miðinn á tónleikana?
4.990 kr!
Orðlaus.
365 brillera!
Stöð 2 Sport2 er rosalega þjált heiti á íþróttastöð : )
Til lukku 365, þið klikkið ekki frekar en vanalega.
13.3.08
Jeff Healey - See the light (live)
Þessi blindi meistari lést aðeins fjörutíu og eins árs 2. mars síðast liðinn.
Healy var aðeins 8 mánaða þegar hann missti sjónina af völdum sjaldgæfs krabbameins í augum, þessi sjúkdómur fylgdi honum alla tíð og dró hann loks til dauða.
Healy lést aðeins mánuði áður en hans nýjasta plata "Mess of Blues" kemur út.
Þetta lag sem hann tekur hér er að mínu mati ekki hans besta lag, en hæfileikar hans sem gítarleikara koma sterkt fram í því, og það ræður.
KSÍ klikkar ekki á því : )
Þar af leiðandi verður lið Íslands skipað leikmönnum sem spila í íslensku deildinni og eru rétt að komast af stað enda aðeins 20 dagar síðan keppni í Lengjubikarnum hófst og ekkert alvöru mót í gangi á Íslandi fyrr en eftir tvo mánuði.
Veruleikafirring?
12.3.08
Ken Lee - Bulgarian Idol
Ég vissi ekki að þetta lag gæti orðið fallegra en það var í flutningi Mariah Carey, en þetta toppar það klárlega : )
Bonerinn
“Í hvert skipti sem ég klappa saman lófunum deyr barn í Afríku.”
Þá heyrist rödd framarlega í áhorfendaskaranum:
“Af hverju í andskotanum hættirðu þá ekki að klappa?”
10.3.08
Aldrei of seint.
Þau byrjuðu saman fyrir 56 árum síðan og hafa núna ákveðið að skella sér útí djúpu laugina, hún reyndar segir í gríni að henni finnist þau fara heldur geyst í þessu öllu : )
En hvernig ætli brúðkaupsnóttin verði?
8.3.08
Bjart framundan í golfinu?
Takk fyrir að taka þátt.
6.3.08
Lygar/ýkjur í auglýsingum
Tæki þetta sem er einhverskonar pumpa sem teygir á tyllanum, og við endurtekna notkun í vikur eða mánuði ku félaginn lengjast um 3-7 cm!
Ekki bara það heldur verður hann breiðari, eigandi hans mun fá betri fullnægingar og sprauta meiru úr honum við fullnægingu, ja há!
Kynfræðingar hafa mótmælt því hvernig þetta tæki er auglýst og vilja meina að árangurinn, ef einhver er verði ekki varanlegur.
En ég var að velta fyrir mér af hverju er þessi einstaka vara tekin fyrir þegar auglýsinga tímar eru fullir af hæpnum loforðum.
Hér eru nokkur dæmi:
Nivea auglýsir grennandi krem sem á að minnka ummál um 3 cm á nokkrum vikum.
Endalausar snyrtivörur sem eyða hrukkum, margfalda lengd augnhára o.s.f.v.
Harpic vill selja okkur salernishreinsistein sem skilar sóðakamri sem skínandi Gustafsberg, eins má telja allar hreinsiefna auglýsingar, þvottaefni uppþvottaefni.
Cilit Bang t.d. er algert kraftaverkaefni sem eyðir motorolíu eins og ekkert sé:
Svona má lengi telja.
Þess vegna væri gaman að fá að vita hver er í raun ábyrgð seljanda?
Má bara fullyrða hvað sem er um vöruna og jafnvel láta duga ósýnilegan texta sem bregður fyrir í augnablik á skjánum?
Maður bara spyr.
Ratar fólk almennt ekki heim til sín?
Svo kemur í ljós að þeir hafa verið hjá vini undanfarna 3 daga og enginn vissi neitt!
Einkennilegur andskoti.
Og svo núna í gær þessi kall sem ekkert hefur spurst til í nokkrar vikur, hann fannst svo strax og eftir honum var lýst.
Hvur djöfullinn er í gangi eiginlega?
Nú verður maður að passa sig.
Já maður verður að passa sig, það geta ekki allir varið eins dannaðir og passasamir í nærveru sálar eins og ég : )
5.3.08
4.3.08
Textalaus trúður!
Eins og vanalega var þessi þáttur fyndinn og fullur af vandræðalegum augnablikum, en ekkert var þó eins vandræðalegt eins og sú angist sem fyllti mig þegar þátturinn hófst og var án texta í c.a. 2-3 mín!
Ég er algerlega handónýtur á danska tungu, fyrir utan svona einstaka orð sem ég hef þurft að nota gríðar mikið þegar ég hef verið í baunalandi eins og t.d. "jegre" og "únskúld", en þessi orð voru bara nánast ekkert notuð á þessum fyrstu mínútum þáttarins.
Ég vona að þetta gerist ekki aftur, ég myndi bara ekki þola að missa svona heyrnina yfir uppáhalds þættinum mínum.
3.3.08
Hrossakjétsát.
Í gærkveld kom tengdaafi minn í mat til okkar í Geislann og bauð ég upp á téðan rétt með jafningi, Ora grænum og soðnum kartöflum frá Brekku í Þykkvabæ, alger snilld.
Eftir að máltíðinni lauk spurði ég sjálfan mig, hvers vegna elda ég ekki oftar þennan fína mat?
Ketið er ódýrt, einfalt í matreiðslu og alveg yndislega gott.
Það er einmitt helst að ég kaupi hrossakjöt þegar ég á von á afa Nonna í mat, líklega finnst mér viðeigandi að bjóða fullorðnum manni upp á svona "gamaldags" mat, ég veit samt ekki.
En ef svo er þá er alveg ljóst við verðum að fá hann oftar í mat.
Gaman : )
Og ekki eru allir á einu með væntanlegan árangur, sem er auðvitað bara skemmtilegra.