16.3.11

True Grit (2010)



Aðalhlutverk: Jeff Briges, Hailee Steinfeld, Matt Damon og Josh Brolin.

Nýjasta mynd Cohen bræðra og er hún talsvert öðruvísi en maður á að venjast frá þeim bræðrum, þó gæðin séu klárlega til staðar.

Myndin fjallar um hina 14 ára gömlu Mattie Ross (Hailee Steinfeld) sem ákveður að ráða lögreglumanninn Rooster Cogburn sem leikin er snilldar vel af Jeff Bridges til að aðstoða sig við að elta uppi morðingja föður hennar.
Myndin fjallar svo um þá eftirför og hið óumflýjanlega uppgjör stúlkunnar og föðurmorðingja hennar.

Þessi mynd er endurgerð samnefndrar myndar frá árinu 1969, þar fór John Jayne með rulluna sem Jeff Bridges brillerar í hér.


Stórfín mynd í alla staði.

Einkunn: 8/10

Engin ummæli: