24.3.11

Biutiful (2010)



Leikstjóri: Alejandro González Iñárritu (Amores perros)(21 Grams)(Babel)
Aðalhlutverk: Javier Bardem

Myndin sem gerist í Barcelona dregur upp dekkri mynd af þessari frægu borg en maður á að venjast, hún gerist öll í fátækari hluta borgarinnar þar sem flestir berjast við að draga fram lífið í skugga ólöglegrar starfsemi af ýmsum toga.

Aðalsöguhetjan er Uxbal, leikinn af Bardem. Hann er tveggja barna faðir sem berst við að halda fjölskyldunni gangandi þrátt fyrir að hafa nýlega greinst með krabbamein á lokastigi. Hann starfar sem milliliður í ólögmætri framleiðslu á allskonar varningi sem ólöglegir innflytjendur framleiða í kjallaraholum við ömurlegar aðstæður í Barcelona.


Myndin var tilnefnd til Oscars verðlauna sem besta erlenda myndin á síðustu Oscars hátíð en það var Dönsk mynd sem vann. Javier Bardem var líka tilnefndur til Oscars fyrir bestan leik í aðalhlutverki en þau verðlaun fóru til Colin Firth.

Mjög áhrifarík mynd og alveg þræl góð.

Einkunn 8/10

Engin ummæli: