20.3.11
Rango (2011)
Þrælskemmtileg og flott teiknimynd þar sem Johnny Depp talar fyrir aðalhetjuna Rango.
Myndin fjallar um Rango sem er eðla, útaf umferðaróhappi verður Rango viðskila við eigendur sína og álpast á endanum inn í lítið þorp í eyðimörkinni.
Þar glíma þorpsbúar við mikla vatnsþurrð, en svo virðist sem vatnsbirgðir þorpsbúa séu að hverfa með dularfullum hætti.
Rango sem á sér þann draum heitastann að verða leikari ákveður að þykjast vera jaxl úr villta vestrinu og lýgur upp hetjusögum af sjálfum sér, úr verður að hann er settur í starf lögreglustjóra með það að markmiða að komast að því hvað er raunverulega að gerast í þorpinu.
Ég fór að sjá þessa mynd með krílunum mínum í Egilshöllina enda er myndin öllum leyfð, hún er þó full óhuggnanleg fyrir þessi yngstu og ekki var alltof mikill hávaði á sýningunni að hjálpa.
Alveg furðulegt hversu litla tilfinningu sýningarstjórar hafa fyrir hávaðaþoli barna.
Einkunn 8/10
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli