18.3.11

Piranha (2010)



Ókey, ég vissi alveg að þessi mynd færi seint í bunkann með góðu myndunum, en sem maður með afar opinn huga varðandi flestar bíómyndir ákvað ég að láta vaða.

Myndin gerist í smábæ einum í USA í "spring break" fylleríi, þar sem safnast hafa saman ungmenni í þúsundatali í þeim tilgangi einum að detta í það og skemmta sér á ströndinni.
Svo vill svo óheppilega til að jarðskjálfti veldur því að sprunga myndast á sjávarbotni rétt utan við bæinn, og þar opnast leið fyrir fornsögulegar ófreskjur til að komast í stuðið á ströndinni.

Hér eru sem sagt á ferðinni hinir kjötelskandi Piranha fiskar sem mega ekki neitt hold sjá á þess að fá sér bita, og nóg er af holdinu í þessari mynd.

Á köflum er myndin alveg ágæt, en svo fellur hún alveg í ruglið oft á tíðum og er því bara þessi týbíska della sem var bara framleidd til að seðja einhvern sérstakan markhóp sem nennir að fara í bíó og sjá ræmuna.

Einkunn 5/10

Engin ummæli: