30.4.08

Chelsea vs Liverpool

Jæja, þá er komið að seinni leik minna manna og Chelsea í undanúrslitum meistaradeildarinnar en fyrri leikurinn fór 1-1 sælla minninga : ) þar sem hinn rosalega einfætti Riise áhvað að leggjast í jörðina og skalla bolta sem var 20 cm frá jörðu frekar en að nota hægri fótinn sem hann getur varla staðið í, og jafnaði þannig fyrir Chelsea í lok viðbótartíma.
Mín tilfinning fyrir þennan leik er ekki góð og svo dreymdi mig tap líka, ég held að Chelsea vinni leikinn í kvöld og mæti í Moskvu Man Utd sem fóru verðskuldað áfram úr viðureign sinni við hugmyndasnautt lið Barcelona í gær.

Þannig er nú það.

28.4.08

Bíó: Atonement (2007)



Ágæt mynd, ég hélt hún væri betri.
Ég reyndi að láta Keyru Nightley ekki fara í taugarnar á mér en eins og hún er léleg leikkona þá er James McAvoy góður.

Einkunn: 7/10

27.4.08

Golf sísonið að byrja!

Nú er apríl á enda og þá er hægt að segja að golf sísonið sé að fara að byrja og ég hef ekki náð að standa við þá áætlun mína að mæta til leiks með margra vikna undirbúning að baki, jújú ég æfði ágætlega í janúar fór til kennara og keypti svo nýtt sett, vonandi kemur þetta til með að skila betra spili í sumar og helst einhverri lækkun á forgjöf.
En það er enn tími til að liðka sig fyrir sumarið og þá er bara að gara það : )

Hvað skal segja þegar ekkert er að segja?

Er þá ekki bara best að þegja?
Ekki alveg, eftir hræðilegar tvær heilsuleysis vikur hjá mér/okkur fjölskyldunni er þetta nú allt að koma....vona ég, passa bara að fara ekki of geyst af stað.

25.4.08

Föstudagsfílingurinn!



Snilldar lag, snilldar band.
Ekkert meira um það að segja.

24.4.08

Gledilegt sumar frá heilsubælinu í Fram hverfi

Tad er komid sumar, ekki ber á ödru.
Snepill kom inn um lúguna tar sem kynnt er skemmtidagskrá fyrir okkur hér í Grafarholtinu, ef ekki væri fyrir ad dagskráin er gjörsmitud af tátttöku "ítróttafélags" sem vegna ellidaudra adstædna fékk ad planta sér hér í Holtid tá hefdi dagurinn kannski verid skemmtilegur.
Annars er vetur enn hjá okkur á heimilinu, Dagny er ad vísu hitalaus í dag og ég er bara med smá hita en slatta kvef, en tá eru konan og Trausti bædi löggst, hann med 40 stiga hita og hún med 39.
Gleeedilegt sumar!

23.4.08

Ómetanlegt : )



Mér sýnist Drobga vera fastur í ventlinum á boltanum…………………………….

Trelleley!

22.4.08

Liverpool 1-1 Chelsea

Hræðilega óþolandi úrslit!
Liverpool var enn einu sinni miklu betra liðið í viðureign sinni við Chelsea og það gefur manni góða von fyrir seinni leikinn.
Rosalega vona ég að Drogba fari burt úr úrvalsdeildinni í sumar, hann er algerlega óþoladi, leikaraskapurinn og tuðar útaf öllu.
Ekki skil á hvaða lyfjum dómarinn var í kvöld því hann var gersamlega blindur á fantaskap leikmanna eins og Terry (þurfti að klofa yfir liggjandi Torres og lét sig síga til að reka hnéð í síðuna á honum) og af hverju Ferreira fékk ekki spjald í leiknum er mér alveg fyrirmunað að skilja.
Liverpool spilaði fannst mér fanta fínan fótbolta í kvöld og ef ekki hefði verið fyrir að Riise þurfti að kóróna ömurlegt tímabil þá hefði mjög verðskuldaður 1-0 sigur verið í höfn.
En af hverju….af hverju þurfum við alltaf að fara erfiðu leiðina?
Ég er ekki að grínast, ég er búinn að fá nóg af þessu” drullast áfram á kraftaverki” hjá Liverpool!
Við áttum að vinna þennan leik 3-0!
AAAARRHHHHHHHHHHHHHHHHHH!



He he he, varð að láta þessa mynd af þjálfurunum fylgja : )
Hvað er Avram Grant?
Það er nú oft talað um að Rafa sé rólegur á bekknum, en þessi...þetta....hvað sem þetta er....shiiiiit!

Fyrirtíðaspenna!


Ef ég get einhvertíma sagt að ég sé þjakaður af "fyrirtíðaspennu" þá er það fyrir leiki Liverpool í Meistaradeildinni.
Auðvitað er hér ekki um eiginlega fyrirtíðaspennu að ræða, enda er ég ekki kelling sem hefur á klæðum, en á leikdag í Meistaradeild þá byrja ég að nötra og fæ jafnvel smá svitaköst, mjög svo "ala" fyrirtíðaspenna.
Mínir menn, hinir rauðklæddu frá Bítlaborginni hafa auðvitað náð mjög góðum árangri í Meistaradeildinni undanfarin ár, eða frá því að Rafa Benitez tók við liðinu.
Rafa hefur komið liðinu í fjögurra liða úrslit alltaf utan einu sinni eftir að hann tók við af Houllier, tvisvar komumst við í úrslitaleikinn sjálfan og unnum hann í eitt skiptið og var það í fimmta sinn sem Liverpool vinna þá dollu og unnu hana sér því til eignar árið 2005.
En nú á dögum er það aðallega tvennt sem hægt er að bóka í þáttöku Liverpool í Meistaradeildinni og það er að Liverpool þarf alltaf að fara dramatískan Fjallabak þannig að fjárfesting í hjartastuðtæki hefur verið margíhuguð og svo hitt að til að komast í úrslitaleikinn þarf nauðsynlega að mæta Chelsea.
Sem betur fer hefur þetta ekki reynst vandamál hingað til, en svo mun örugglega ekki alltaf verða, kannski er kominn tími á Unkel Fester að stýra Chelsea lengra en mótorkjafturinn MoaningHo gat.
Eitt er víst að ósk mín um öruggan 3-0 sigur í kvöld rætist tæplega, og þar með von mín um stress fría viðureign svona einu sinni, nei 0-0 eða 1-1 er mun líklegra og þarf þá mitt lið að kippa út enn einu kraftaverkinu til að komast í úrslitaleikinn.
Sjáum til.
Y.N.W.A !

20.4.08

Bati velkominn.

Ég var ad koma frá lækni enda hefur mér bara versnad ef eitthvad.
Hann vildi meina ad tad sé allt stíflad í andlitinu á mér og hausinn sé fullur af drullu, ég held ad hann hafi rétt fyrir sér enda er ég algerlega ad drepast : (
Er sem sagt kominn á syklalyf og nú hlítur tetta ad koma : )

19.4.08

Bara svo þú vitir...........

............þá er ég enn þá veikur!
Skítkast velkomið.

18.4.08

Föstudagsfílingurinn!



100 Days, 100 Nights flutt af Sharon Jones & The Dap-Kings er flottur föstudagsfílingur.
Passið að fá þetta ekki á heilann.

17.4.08

Flensu helvíti!

Nú er nóg komið, ég loka viku af veikindum á morgun!
Eftir að hafa nálgast bata rólega frá því á laugardag þegar hápunktinum var náð sagði mælirinn mér í gær að ég væri hitalaus, mér bara leið ekki þannig : (
Í dag er ég svo með 38,1 og bara drullu slappur, helvítis helvíti!

16.4.08

Spurningu lokið.



Þannig fór það.

15.4.08

Pixies - Hey (live)



Skemmtilega hrá upptaka af þessu frábæra lagi með snilldar bandinu Pixies.

Bíó: Death at a Funeral Trailer (2007)



Ágætis farsi.

Einkunn: 7/10

14.4.08

Til hamingju kæru brúðhjón.



Innilega til hamingju með daginn ykkar á laugardag elsku Bjarni og Kristín.
Megi hamingjan brosa við ykkur ávallt.

Eftir margra mánaða tilhlökkun urðu það okkur sár vonbrigði að geta ekki verið með ykkur á þessum merka degi, en svona er þetta nú alltof oft : )

Aumingja uppdeit

Jæja þar sem ég hef legið í sárum mínum um helgina eftir að hafa misst af brúðkaupi aldarinnar er heilsið aðeins að koma til.

Laugardagur 39,5 fór ekki fram úr rúmi allan daginn : (
Sunnudagur 39,0 færði mig frá rúmi yfir í sófa, en rúmið sigraði að lokum.
Mánudagur 38,5 er búinn að vera "á fótum" (ekki rúmliggjandi) síðan kl 07 í morgun : )

Allt að koma.

11.4.08

Veikur : (

Í dag er ég veikur, með hita og hor.
Er það ekki akkúrat ég að veikjast þegar mikið stendur til?
Ég á fullt af góðum pillum síðan úr Vegas ferðalaginu sem ættu að geta hjálpað mér til þess að mæta í brúðkaup Bjarna og Kristínar á morgun, ég skal!

Annars fannst mér stjörnuspá nautsins á mbl.is í dag algerlega viðeigandi:
"Hvað sem kemur í veg fyrir áætlaðar skemmtanir er ekki nógu gott. Reddaðu því á svipstundu. Það eina sem er einhvers virði er ánægjuleg reynsla þín."

10.4.08

Munaði litlu.

Ég verð að deila þessu með ykkur.
Í gærmorgun varð slys á Reykjanesbrautinni á vegakaflanum á milli Voga og Grindavíkur, ekki fyrsta slysið síðan að verktakarnir fóru á hausinn og skildu eftir sig ófrágengið verk.
Ég nefnilega rétt slapp við að verða valdur að slysi á þessum sama kafla á Föstudaginn langa.
Við fjölskyldan skelltum okkur í heimsókn til Grindavíkur og seinni partinn lögðum við af stað heim á leið, svo þegar út á þennan umrædda vegakafla var komið og ég búinn að keyra smá stund blasti við mér tvöfaldur vegur hinumegin við mig (að vísu var þar engin umferð sjáanleg, ekki það að ég hafi verið að pæla í því) og því var ég viss um að við værum kominn á tvöfaldaðan kafla enda sá ég ekkert sem benti til annars.
Eftir að hafa verið á vinstri vegahelming í nokkrar sekúndur og tekið fram úr c.a. 2 bílum þá spyr konan mig hvort ég sé brjálaður, ég var ekki að fatta hvað hún var að meina með þessu enda var umferðin fyrir framan mig frekar hæg.
Svo er mér litið lengra fram á veginn og sé ég að það nálgast okkur bílalest beint á móti!
Djöfull hvað mér brá og náði ég að troða mér fram fyrir næsta bíl rétt svo til að forðast árekstur.
Ég get varla ímyndað mér hvurslag slys hefði þarna orðið því fyrir aftan mig voru bæði 3 mótor hjól og svo auðvitað bílar lika, og á móti voru svo nokkrir bílar í röð lika.
Ég hef örugglega aldrei verið eins nálægt því að drepa mig og hvað þá mína nánustu líka, svo ég tali nú ekki um hina bílstjórana sem voru að gera allt rétt.

Ef ég væri trúaður maður (sem ég er ekki) þá væri ég alveg viss um að ef konan hefði ekki spurt mig hvort ég væri brjálaður þá hefði þetta stutta ferðalag komist í fréttirnar : )

8.4.08

Liverpool 4-2 Arsenal (samanl 5-3)

Sei sei já, þvílík spenna sem þessi leikur var : )
Þá er það bara Chelsea einu sinni, einu sinni enn : )

Bring it on!




Spaugstofan ekki meir?

Samkvæmt lítilli klausu í Fréttablaðinu í dag ku spaugstofumenn vera orðnir uggandi yfir því að ekki hafi enn verið gengið til samninga við þá um þáttagerð fyrir næsta vetur, en þeir semja víst alltaf til eins árs í einu.
Tafirnar eru víst til komnar vegna Þórhalls Gunnarssonar dagskrárstjóra en hann er víst að skoða málin.
Það er ljóst að áhorf á þætti þessara steingeldu hasbinnara hefur dalað þó nokkuð undanfarið en þó er spurning hvort ekki sé ástæða til að semja við þá um áframhaldandi "glens" bara fyrir talsvert lægri laun, það eru jú enn nokkur gamalmenni og svo auðvitað húmorslausir sem hafa gaman af Spaugstofunni.
Annars vonar maður bara að augljós metnaður Þórhalls nái til framleiðslu nýs og fersks gríns á laugardagskvöldum.
Ég lifi í voninni..........

7.4.08

Athyglisvert

Skemmtilegt að nú eru 7 aðilar búnir að "svara" spurningunni, og enginn er sáttur þar sem viðkomandi er : /
Sad, ekki satt?

Kvót

" A hippie is someone who looks like Tarzan, walks like Jane and smells like Cheetah"
Ronald Reagan.

6.4.08

Ný spurning.

Svara svo.

Spurningu lokið.

Flestir virðast hafa sloppið vel frá þessum hörmungum : )

Man Utd eða Chelsea?

Nú er heldur betur að færast spenna í Ensku úrvalsdeildina eftir úrslit helgarinnar.
Svona lítur þetta úr eftir helgina:




Man Utd eiga klárlega erfiðasta prógramið eftir þ.m.t. heimaleik gegn Arsenal og útileik gegn Chelsea.
Eins og staðan er í dag þá spái ég Chelsea titlinum.

5.4.08

Jokur

það var einu sinni kona sem átti þrjár dætur.
Í hvert skipti sem einhver af dætrum hennar gifti sig bað mamman þá
dótturina sem var að gifta sig í það skiptið, að vera fljóta að skrifa
heim eftir að hún fluttist að heiman og segja gömlu konunni hvernig
kynlífið væri hjá hinni nýgiftu.

Jæja sú elsta gifti sig fyrst og aðeins tveimur dögum seinna barst
gömlu konunni bréfið frá dóttur sinni.
Á því stóð aðeins “Myllukökur Myllubrauð”.
Gamla konan átti bágt með að skilja þetta en fyrir einhverja rælni tók
hún eftir auglýsingu frá Myllunni þegar hún vað að blaða í Dagblaðinu
síðar um kvöldið.
En þar stóð “Myllukökur Myllubrauð…… ávallt seðjandi”.
Gamla konan sá nú að hún þyrfti engar áhyggjur að hafa að elstu dóttur
sinni, henni væri vel sinnt.

En þar kom að miðdóttirin gifti sig og leið vika frá brúðkaupinu þar
til gömlu konunni barst bréfið frá dóttur sinni.
Þar stóð aðeins “Ingvar og Gylfi”. Kella var nú fljót að leita að
Dagblöðunum og fann að lokum auglýsingu frá Ingvar og Gylfa þar sem
stóð “Nýi rúmgaflinn frá okkur…… King size og extra langur”.
Vissi nú kella að hún þyrfti heldur engar áhyggjur af hafa af þessari
dóttur sinni.

Jæja bréfið frá yngstu dótturinni var lengi á leiðinni en barst loks
kellu fjórum vikum eftir brúðkaupið.
Í bréfinu stóð aðeins eitt orð “Flugleiðir”.
Kella leitaði nú ákaft að auglýsingu frá Flugleiðum í Dagblaðinu og á
endanum fann hún eina.
En eftir að hafa lesið auglýsinguna leið yfir kerlinguna því þar stóð:
“Þrisvar á dag, sjö daga vikunnar, á alla áfangastaði!!!!!!!!

2.4.08

Bíó: The Kite Runner (2007)

Mynd sem margir addáendur bókarinnar bidu lengi eftir.
Ég hafdi ekki lesid bókina enda meira fyrir myndirnar, en ekki vard ég fyrir vonbrygdum enda gód saga og vel leikin.
Einkunn: 8/10

Tekinn med bros a vör

Var ad fylla á tankinn hjá AO á 136kr líterinn af disel.
Og tetta gerir madur med bros á vör, en kunnuglegan svida í borunni.

Parket lögn.

Í gærmorgun kom maður að nafni Jónas og skipti út því parketi sem skemmdist í janúar þegar það flæddi undir gólfefnið úr þvottahúsinu. Hann mætti á staðinn kl 9:30 og hófst handa við að rífa upp og sortera frá þær plötur sem hann gat notað aftur, kl 12 fór hann í mat og var þá allt tilbúið til sögunar og niðurlagnar.
Rétt áður en hann kom úr mat fór rafmagnið af öllu Grafarholtinu og Gravarvoginum líka og var ég þar með viss um að hann væri stopp þar sem sögin var óvirk, en nei aldeilis ekki, reif þá ekki kall upp handsög og handsagaði allt heila klabbið, líka það sem þurfti að langsaga! (rafmagnið kom um leið og hann var búinn að saga síðustu fjölina).
Skemmst er frá því að segja að hann var búinn að öllu með tiltekt fyrir kl 19.
Alger nagli.

1.4.08

1. apríl

Í dag er fyrsti apríl og þá er keppst við að ljúga sig fulla og best heppnast lygin ef viðkomandi tekst að fá einhvern til að ómaka sig eitthvað vegna lygarinnar.
Fréttastofu Rúv tókst að sjóða saman bull um að gamalt neðanjarðarbyrgi í Öskjuhlíðinni og var fólki bent á að í dag væri hægt að skoða byrgið undir leiðsögn Þórs Witehead.....alltof augljóst.
Á mbl var til dæmis sagt frá tímamótasamningi sem mbl hefur gert við einhvert fyrirtæki um rétt til sýninga á nýjum kvikmyndum......yeah right.
Lifi lygin!