
Leikst: Rob Zombie, hingað til aðallega þekktur sem tónlistarmaður og rokkari.
Aðalhlutverk: Enginn sem þú kannast við.
Eins og nafn myndarinnar gefur sterklega til kynna þá er þetta hryllingsmynd og sem slík bara annsi fersk.
Myndin fjallar um tvö ung pör sem eru á flakki um afskekktari svæði Texas í þeim tilgangi að kynna sér sögusagnir af morðingjum og misyndisfólki svæðisins og lenda svo í klónum á sadískri og snargeðveikri fjölskyldu.
Þessi mynd þrælvirkar í að koma hrolli í mann og þess vegna er maður jú að horfa á svona mynd.
Það er búið að gera framhald af þessari mynd og heitir hún Devils Rejects og mun ég fjalla hum hana strax og ég er búinn að horfa sem verður fljótlega...úúúú...spennó !
Einkunn: 7/10
Satan.
1 ummæli:
Já nafnið djúsífrút segir manni bara að hann er hryllings aðdáandi : )
Skrifa ummæli