
Nú eru byrjaðir að koma í pósti bæklingar frá ferðaskrifstofunum, í gær kom einn frá Heimsferðum og var aðal áfangastaðurinn Tyrkland. Flott hótel, strendur og allskonar fíenerí.
En málið er bara það að það er kominn upp fuglaflensa í Tyrklandi og það dregur pínulítið...nei...það slekkur alveg áhugann á því að fara til Tyrklands, og reyndar allra þeirra landa sem eru með fársjúkan fiðurfénað ráfandi um göturnar.
Þetta gæti orðið annað stór áfall fyrir ferðaiðnaðinn á örfáum árum, fyrst hryðjuverkaárásir útum allt og núna fuglaflensa.
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli