26.1.06

Söngvakeppni sjonvarpsins 2006

Ég er mjög ánægður með hvernig RUV ætlar að tækla Eurovision þetta árið, með því að halda svona stóra og flotta forkeppni fáum við vonandi mörg frambærileg lög í spilun og áhugi á þessari hámenningar tónlistarhátíð sem Eurovision er.......ok kannski ekki hámenning en keppnin hefur samt hreðjatak á Íslendingum hvort sem við viðurkennum það eða ekki.
Ég horfði á þennan fyrsta þátt af þremur á laugardagskveld með smá spenningi og þó svo að flest lögin hafi verið veikari en að ég hafði vonað þá var þetta samt skemmtilegt, að vísu fannst mér kynnarnir frekar stirðir og klaufalegir en það var samt allt í lagi, bein útsending og svoleiðis.
En lögin eru samt það sem allt þetta snýst um.

Sjá næsta póst vegna bilana í þessu Blogger helvíti !

Satan.

Engin ummæli: