
Leikst : Alejandro González Iñárritu (Amores perros)
Aðalhlutverk : Sean Penn, Naomi Watts, Benicio Del Toro.
Það er erfitt að lýsa þessari mynd, í henni er flakkað töluvert í tíma og maður kynnist í rólegheitum aðalpersónunum sem tengjast þegar á myndina líður.
Myndin fjallar um syrgjandi móður leikna af Naomi Watts, fársjúkan stærðfræðing leikinn af Sean Penn og fyrrverandi glæpamann endurfæddann í trúnni sem er leikinn af Benicio Del Toro, þessir þrír einstaklingar tengjast svo þegar að sorglegt slys verður.
Þessi mynd er alveg þræl fín og hiklaust hægt að mæla með.
Einkunn : 7/10
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli