3.10.05

Night Watch


Þessi mynd er Rússnesk og er sú fyrsta að þremur og fjallar að sjálfsögðu um baráttu hins góða og illa.
Það að myndin er á rússnesku setur svolítið skrítinn svip á myndina og gerir hana jafnvel meira óhuggulega, svo er hún ansi vel gerð brellulega séð og er nokkuð frumleg og hrá. Það er hægt að sjá margt sameiginlegt með þessari mynd og Matrix trílógíunni, þó svo að Martix hafi verið mun meira kúl.
Eins og ég sagði þá er þessi mynd sú fyrsta af þremur og voru handritin skrifuð sem trílógía strax, ólíkt Matrix þar sem seinni tvær voru skrifaðar í flýti eftir að sú fyrsta sló rækilega í gegn og voru seinni tvær þess vegna aðeins skugginn af fyrstu myndinni.
Ég horfi á Night Watch (Nochnoy dozor) með enskum texta og það truflaði mig pínulítið, þannig að ég held að með Ísl. texta hefði hún legið betur.
Mig drep langar til að gefa henni 7 en ætla að gefa 6 og mun ég sjá nærstu með tilhlökkun um að hún verði betri.

6/10


Satan.

1 ummæli:

M4 sagði...

: )
right you are !