2.10.05

Lost 2. Kafað dýpra.(ekki lesa nema hafa horft á þátt 2)



Það var eitt lítið smáatriði sem potaði í augun á mér þegar að ég var að horfa á þátt 2 af Lost í gær. Þegar að Sawyer og Michael voru á flekanum úti á sjó þá var hákarl að sveima í kringum þá, og í einu skotinu þá sést vel (ef að maður er með augun opin) að hákarlinn er merktur við sporðinn (sjá mynd), ég lýsti reyndar myndina svolítið upp til að þetta sæist betur.
En hvaða merki er þetta ? Ég veit það ekki, en þetta sama merki er á skyrtunni hjá Desmond í "holunni" og þegar Kate er að reyna að sleppa úr búrinu (þar sem hún stelur nokkrun súkkulaði stykkjum), þá sést þetta merki vel á nánast öllum vörum sem þar eru "Dharma" .
Hrikalega er gaman að þessir þættir eru komnir í gang aftur !
Höfum augun opin.


Satan.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Horfðu á 3 þátt...þá kemur það í ljós.......
M3