10.10.05

Land of the dead


Þessi mynd er sú þriðja í uppvakningaröð leikstjórans George A. Romero hinar myndirnar eru : Dawn of the Dead 1978 og Day of the Dead 1985, og hafa allar þrjár fengið góða dóma og þykja vel heppnaðar.
Það sem aðskylur þessar þrjár myndir frá öllu hinu uppvakninga ruslinu er að þessar er húmorinn og hrár subbuskapurinn sem daðrar við splatter þegar verst er.
Þegar að maður ætlar að gefa myndum eins og þessum einkunn þá þarf eiginlega að gefa eftir katagoríum, t.d er fáránlegt að gefa þessari mynd 7/10 og svo líka Shaun of the dead sömu einkunn, þar sem þessar myndir eru einfaldlega mjög ólíkar þar sem sú síðar nefnda er gamanmynd en um sama hlutinn þ.e. uppvakninga.
Sem sagt í flokki horror mynda þá fær Land of the dead 7/10, sem vel heppnuð og subbuleg og líka svolítið fyndinn.


Satan.

1 ummæli:

M4 sagði...

he he he.......því miður, en ég er vongóður um að Spawn ll komi fljótlega.