30.11.04
Troy...ojjííííí....
Ég var að enda við að horfa á myndina "Troy" og olli hún mér miklum vonbrigðum, þó svo að ég hafi ekki gert mér háar vonir um hana. Ég nenni varla að skrifa mikið um hvað fór mest í taugarnar á mér en hér eru nokkur atriði :
Brad Pitt er rosalega þreitandi sem Akkiles.
Ég gat varla beðið eftir að sá slepjulegi skratti yrði drepinn.
Nánast allir ofleika í þessari mynd.
Helena drottning Spörtu (Grikklandi) er ljóshærð og með blá augu...go figure...
Reyndar er Akkeles það líka og með gel í hárinu alla helvítis myndina í gegn !
Á ca. 10 mín fresti kom alveg hræðilegt tónlistarvæl þar sem kerlingar rödd (Enia með túr verki) gaulaði Aaaaa....aaaa....a.aa..aa....aaaa og átti það örugglega að hafa rosalega djúp áhrif á mann, en virkaði frekar þannig að æluna mína langaði að kasta upp !
Ég var byrjaður að hraðspóla eftir 30 mín.
Viðurstyggðin er hátt í 3 tímar !
5/10
SATAN.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli