24.11.04

Kaninn klikkar ekki

Samkvæmt usatoday.com þá vann kona nokkur í Baltimore mál, þegar að hún kærði stefnumótaþjónustuna þar sem hún kynntist manni sem hún svo giftist. Maðurinn reyndist vera geðveikur og ku hafa lamið konuna sína og almennt ekki verið neitt sérstakur eiginmaður.
Dómstóll dæmdi stefnumótaþjónustuna til að borga konunni $ 434.000 eða rúmlega 30 millur !
Bezt að hafa þetta í huga næst þegar að maður ætlar að kynna vin sinn fyrir einhverri gellu !


Satan.

Engin ummæli: