19.11.04

Super Size Me


1706053
Originally uploaded by satan.


Ég horfði í gærkveld á heimildamyndina "Super Size Me" í góðum félagsskap.
Mér fannst myndin mjög góð og líklega mjög holl áhorfs, þó svo að ólíklegt sé að maður fái sér ekki aftur skyndibita !
Gef henni 8/10
En í umræðunni eftir myndina hjá okkur félugunum kom upp sú pæling (M5) hvort að Spurlock sé ekki orðin efnaður á þessari tilraun sinni.
Þannig að ég áhvað að skoða ýmsar staðreyndir um það.


Myndin kostaði í framkvæmd : 300.000 $
Skilaði í USA : 11.529.368 $
Sem sagt smá gróði : )
Fyrstu sýningarhelgina í USA skilaði myndin : 516.641 $
Opnunarhelgina í Ástralíu sló myndin met sem heimildamynd með því að raka inn yfir 1.000.000 Aus $ sem er ca. 800.000 $
Þessar tölur eru án tillits til Dvd og Video.

Heimildamyndin Super Size Me var sýnd á Sundance hátíðinni í janúar 2004, innan við tveimur mánuðum síðar tilkynnti McDonalds að þeir væru hættir að bjóða skammta í "Super Size" en þeir þverneituðu samt að sú ákvörðun hefði verið tekin útaf myndinni : )

Morgan Spurlock fékk hugmyndina um að gera umrædda mynd þegar að hann lá í sófanum heima hjá fjölskyldu sinni á Þakkargjörðardag, og sá í fréttum í sjónvarpinu að tvær unglingsstelpur höfðu kært McDonald´s fyrir að stuðla að offitu sinni.

Tónlistin sem spiluð er í myndinni hæfði oftast efninu, en meðal laga sem fyrir koma er :
Fat Bottom Girls - Queen
Yummy Yummy yummy - Ohio Express
Rock´n roll McDonalds - Wesley Willis
Rubber Biscuid - The Chips
Fat - Violent Femmes


Satan.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þú klikkar ekki á heimildaöfluninni frekar enn fyrri daginn

M7