23.11.04

Moore

Michael Moore hefur aldeilis ekki ákveðið að sitja auðum höndum eftir að George Bush varð endurkjörinn forseti.
Hann og annar forstjóri Miramax, Harvey Weinstein, eru búnir að skipuleggja framhaldsmynd á Fahrenheit 9/11 sem ber þann einfalda titil: Fahrenheit 9/11 1/2. Moore er sannfærður um að ástæðan að Bush hafi fengið þessi 51% atkvæða var sú að fólkið ''vissi ekki allan sannleikann,'' eins og hann orðaði það og bauðst hann til að veita þeim enn fleiri upplýsingar um manninn, enda segir hann einnig að það hefði átt að vera bannað með lögum að leyfa þessum manni að bjóða sig fram sem forseta.
Moore segist ætla að vera tilbúinn með myndina innan við næstu 3 árin, en nú er hann að vinna við Sicko!, heimildarmynd sem mun fjalla um hið margumdeilda heilbrigðiskerfi Bandaríkjanna.

Maðurinn er bara scnillingur !!


Satan.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Scnilli er hann, það er víst.

Spurning hvenær ukkur hægrisinnaður fábjáni tekur sig til og plaffar karlinn niður.