24.8.04

Ól

Jæja þá eru nánast allir Íslensku ólympíufararnir búnir að gera í brók, það ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart þar sem við öðru er varla að búast.
Handbolta bjánarnir okkar voru extra bjánalegir í þetta skiptið og áttu meira að segja í mesta basli með Brazilíu menn, en ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að í Brazilíu flokkast handbolti ekki til íþróttar, heldur frekar svona til styrkjandi æfinga fyrir spastíska og hreyfihamlaða !
Örn Arnarson mun hér eftir ganga undir nafninu Hvalurinn, og þá ekki vegna sundfimi !
Jón Arnar Magnússon setti nýtt met með því að ná þeim merka árangri að detta úr keppni í fimmta stórmótinu af sex, það er reyndar alveg magnað að nokkrum skuli detta það í hug að hann geti náð árangri í nokkru yfirleitt þar sem honum er alveg fyrirmunað að raka sig eins og maður, eins einfalt verk það nú er !
Ljósu punktarnir í þessu öllu eru svo þau Þórey Edda og Rúnar Alexsanderson sem stóðu sig með stakri prýði og mun ég þar af leiðandi ekki eyða fleiri orðum um það.


Satan.

Engin ummæli: