Hvað er eiginlega með þennan upp hæpaða leik, og það vináttuleik í ofanálag ?
Ítalir eru með hálfgert varalið í þessum leik, Lippi mun tefla fram slöku liði en þegar litið er yfir hópinn sést að það vantar hverja stórstjörnuna á fætur annarri, og það er látið með leikinn eins og þetta sé stærsti leikur sem Ísland hefur nokkurntíma spilað !
Og hvað er með þetta bull um að slá aðsóknarmetið síðan að Valur og Benfica mættust hér á landi 196? sem var ca 18.200 kvikindi eða u.þ.b 10 % þjóðarinnar. Til að slá það met þurfa að mæta ca 30.000 kvikindi !
Ókey það er kannski asnalegt að stilla þessu upp svona en ég held að það sé bara verið að gera einhvern merkisviðburð úr því að kúka !
Eggert Magnússon KSÍ og UEFA frömuður segir að núna sé síðasti sjéns að slá metið vegna þess að það á að fara byggja við áhorfendastúkurnar við Laugardalsvöll og eftir það verði hámarks áhorfendafjöldi 14.000 manns !!! 14.000 þúsund, hvað er að !! Fyrst að það er verið að stækka stúkuna á annað borð af hverju ekki að gera það almennilega ? Það virðist allavega ekki vera neitt vandamál að fá rúmlega 18.000 fávita til að koma og horfa á varalið Ítala spila !!!!
22.000 sæti í Laugardalinn er lágmark !
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli