Ég fór ásamt fríðu föruneyti að sjá Fahrenheit 9/11 á föstudagskveld. Ekki þarf að taka það fram að við höfðum öll beðið þessarar myndar með spenningi, og hvílík mynd...ég meina að einhverntíma hebbði ég þrætt fyrir að að fara í bíó að sjá "heimilda mynd" en ekki núna, myndin er rosalega fyndin en þó samt aðallega sorgleg og þá er ég ekki bara að tala um tár útaf mannfalli og slíku heldur er bara svo hrikalega sorglegt að horfa uppá hversu kaninn er sjúkur, allavega stór hluti af honum...æi maður er eiginlega orðlaus, ég reyndi að horfa á þessa mynd með hlutleysi en það er bara svo erfitt, Bush og félagar eru svo rotnir að það hálfa er helmingi of mikið.
Ef að það er einhver ástæða fyrir því að Michael Moore eigi ekki að fá Óskarinn og allt hitt draslið fyrir þessa mynd, þá er ástæðan sú að það er bara svo helvíti auðvelt að láta Bush líta út eins og apa !
9 af 10 hjá mér.
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli