30.6.08

29.6.08

Euro 2008. Úrslitaleikurinn. Mín spá.

Þýskaland 1 - 1 Spánn (0-1)

27.6.08

Stórkostlegri skemmtun lýkur á sunnudag.

Hvernig fólk getur verið að væla útaf EM í Sjónvarpinu er mér fyrirmunað að skilja.
Kannski ekki skrítið þar sem ég hef mikinn áhuga á fótbolta, en ég vil fá að vita hverju er fólk að missa af?
Fyrstu vikuna voru tveir leikir í beinni, sá fyrri kl: 16:45 og sá seinni kl 18:45.
Þessa fyrstu viku hafa Leiðarljós aðdáendur misst úr viku, eða ekki misst, bara seinkað sýningu á þeim þáttum, það tel ég ekki skipta miklu þar sem þættirnir sem sýndir eru núna á rúv er 10 ára gamlir svo að nógu er að taka.
Ég verð að bæta því við að ég var að komast að því að það hafa verið framleiddir 15.400 þættir af Leiðarljósi og nýlega var skrifað undir samning um í það minnsta nokkur ár til viðbótar : )
Ok, í viku 2 af EM voru 2 leikir á dag en sýndir á sama tíma sem þýðir enn minni truflun á daglegu lífi anti sportistanna.
Fréttatíminn var styttri og hnytmiðaðri fyrir vikið og Kastljósið datt út, miklu alvarlegra varð það nú sjaldnast enda ekkert mál fyrir frétta þyrsta að horfa á fréttirnar á Stöð 2.
Og núna í loka viku EM var einn leikur á miðvikudag og annar í gær og svo er lokaleikur mótsins á sunnudag.
Auðvitað ætti Rúv að hafa aðra rás til að sinna svona stórum verkefnum eins og EM og svo Ólympíuleikunum í sumar, en svo er ekki og engin ástæða til að öskra sig hásan út af því, persónulega horfi ég ekki á neina þætti á Rúv nema Klovn og svo kannski góða náttúrulífsþætti þegar svo ber undir, en ég nenni ekki að ergja mig á öllu hinu "ruslinu" sem sýnt er og ég hef ekki áhuga á, nógu pirraður er ég nú samt : )

Annars verð ég að segja að þetta EM mót í Austurríki og Sviss er það alskemmtilegasta knattspyrnumót sem hefur verið eins lengi og ég man, að meðtöldu HM.
Skemmtilegur fótbolti spilaður í flestum leikjum og mikið skorað, svei mér þá ef sóknarknattspyrnan á EM hefur ekki náð að búa til nokkra knattspyrnu unnendur í viðbót úr þeim sem voru að pirra sig á Leiðarljóss missi.

26.6.08

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Rússland 1 - 1 Spánn (0-3)

Golfhringur # 8




Í gær fórum við félagarnir að spila í blíðu og sól á golfvellinum í Sandgerði.
Eins og hefð er orðin fyrir var ég að spila hörmulega, bætti mig þó reyndar á seinni 9.
Tigerinn tekinn í golfskálanum á Leiru : )

23.6.08

Trausti og Megas

Trausti var að fíla hvernig Megas hinn nýríki misþyrmti dægurlagaperlunni María María.
Að vísu var drengurinn svo óvænt líka að fíla sokka pabba síns, en það er kannski ekki svo skrítið þar sem skokkarnir áttu það sameiginlegt með Megasi að stinka : )

Helst í frèttum

Tvær vinkonur sem höfdu verid vid sveppatínslu gengu fram á hvítabjörn.

Golfhringur #7

Við fórum á Leiruna þann 18 júní M1, M2 og ég í örmurlegu veðri og golfið eftir því.
En djöfull var hamborgarinn góður maður!

Lækkun ekki sjáanleg : (

Helgargrill

Hér er stutt videó sem ég tók um helgina, við feðginin erum að grilla lax við lítinn spenning dótturinnar sem var lasin alla helgina.
En blíðan alla daga núna maður!

22.6.08

Bíó: Dan in Real Life (2007)



Alveg príðis góð grín/drama mynd sem er tilvalin til að horfa á með betri helmingnum.

Einkunn: 7/10

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Spánn 2 - 1 Ítalía (0-0) (0-0fl) (4-2vídó)

21.6.08

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Holland 2 - 0 Rússland (1-1) (1-3fl)

20.6.08

Bíó: Into the Wild (2007)



Myndin fjallar um Chris McCandless sem eftir mentaskóla ákveður að kasta frá sér öllum veraldlegum hlutum og fara á flakk.
Þess má geta að myndin er sannsöguleg.

Stórfín mynd, krydduð með fínni tónlist frá Eddie Vedder.

Einkunn: 8/19

Krúttaralegur bangsi



Alvöru killer!

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Króatía 1 - 0 Tyrkland (0-0) (1-1 fl) (1-4 vídó)

19.6.08

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Portugal 2 - 1 Þýskaland (2-3)

Bíó: Superbad (2007)



Alveg þrælskemmtileg mynd um 3 félaga sem eru að reyna að skora.

Einkunn: 8/10

Viðrekstur á varamannabekk Hollendinga

Hver annar en Rafael Van Del Vaart (borið fram fart) prumpaði svona duglega : )

http://news.bbc.co.uk/sport2/hi/football/euro_2008/7461166.stm

18.6.08

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Grikkland 0 - 1 Spánn (1-2)
Rússland 1 - 2 Svíþjóð (2-0)

17.6.08

Fyrir gítarglamrara, 17. Júní

G C
Blómin spring út og þau svelgja í sig sól.
D G
Sumarið í algleymi og hálft ár enn í jól.
C
Í hjarta sínu fólkið gleðst og syngur lítið lag,
A D
því lýðveldið Ísland á afmæli í dag.


G D G
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei. Það er kominn 17. júní.
G D G
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei. Það er kominn 17. júní.


G C
Jóni heitnum Sigurðssyni færir forsetinn,
D G
firnamikinn árvissan og stóran blómsveiginn.
C
Fjallkonan í múnderingu prílar upp á pall,
A D
með prjáli les upp ljóð, eftir löngu dauðan kall.


G D
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........


G C
Skrúðgöngurnar þramma undir lúðrasveitarleik,
D G
lítil börn með blöðrur, hin eldri snafs og reyk.
C
Síðan líður dagurinn við hátíðannahöld,
A D
heitar étnar pylsurnar við fjölmörg sölutjöld.


G D
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........


G C
Um kvöldið eru allsstaðar útidansleikir,
D G
að sunnan koma rándýrir skemmtikraftarnir.
C
En rigningin bindur enda á þetta gleðigeim,
A D
því gáttir opnast himins og allir fara heim


G D
Hæ, hó, jibbí, jei og jibbí, jei........

Ok, hljómarnir skila sér ekki á réttan stað fyrir ofan textann en þetta er svo einfalt að ég ætla ekki að eyða tíma í að laga þetta : )

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Holland 2 - 0 Rúmenía (2-0)
Frakkland 2 - 1 Ítalía (0-2)

Hæ hó jibbí jei!



Til hamingju með daginn Íslendingar!

16.6.08

Nýtt fyrir okkur IPhone eigendur, IPopcorn : )



Sneddý : )

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Poland 1 - 2 Króatía (0-1)
Austurríki 0 - 4 Þýskaland (0-1)

15.6.08

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Sviss 0 - 2 Portugal (2-0)
Tyrkland 0 - 1 Tékkland (3-2)

Bíó: El Orfanato (2007)



Framleiðandi myndarinnar er Guillermo del Toro en hann er mikill snillingur, hann leikstýrði og framleiddi m.a. myndina Pan's Labyrinth sem er mikil snilld og allir ættu að sjá.

Þrælgóð hrollvekja eins og þær voru gerðar í gamla daga.

Einkunn: 8/10

14.6.08

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Svíþjóð 0 - 2 Spánn (1-2)
Grikkland 0 - 1 Rússland (0-1)

13.6.08

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Ítalía 2 - 0 Rúmenía (1-1)
Holland 1 - 0 Frakkland (4-1)

12.6.08

Bíó: 3:10 to Yuma (2007)



Prýðilegasti vestri, átti samt von á meiru.

Einkunn: 7/10

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Króatía 0 - 2 Þýskaland (2-1)
Austurríki 0 - 1 Pólland (1-1)

Með þetta á heilanum!

Hurry hurry hurry, something in my curry..............

Varð að koma þessu frá mér : )

11.6.08

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Tékkland 0 - 1 Portugal (1-3)
Sviss 1 - 1 Tyrkland (1-2)

Meira marúhúhana

10.6.08

Golfhringur # 6

Ég fór í gær ásamt M1 og M2 eftir vinnu á Kálfatjarnarvöll í fínu veðri.
Skársti hringur sumarsins innihélt einn fugl og 2 pör og allt of mikið af Kríum.
Líf og fjör í sólinni.

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Spánn 1 - 0 Rússland ( 4-1 )
Grikkland 0 - 1 Svíþjóð ( 0-2 )

Að vera slökkviliðsmaður hefur sína kosti og galla.



Svoooo mikill reykur....vááááá....

9.6.08

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Rúmenia 0 - 2 Frakkland ( 0-0 )
Holland 1 - 1 Ítalía ( 3-0 )

Z-Brautir

Við fórum í Z-Brautir Og Gluggatjöld fyrir tæpum 2 vikum síðan til að kaupa myrkrarúllu fyrir gluggan hjá börnunum, ok mér var sagt að þetta yrði tilbúið eftir 2 vikur, ég kváði auðvitað enda um eina rúllugardínu um að ræða en ekki gardínur fyrir heilt hús, já þetta er bara tíminn sem þetta tekur var mér þá sagt.
Þegar við komum út í bíl sagði ég við konuna að þau segðu þetta bara til að vera örugg um að geta afgreitt í tíma en yrðu örugglega fljótari að þessu, það hefur reynst ekki rétt.
Nú eru tæpar tvær vikur liðnar frá því að ég lagði inn pöntun og ekkert hefur gerst.
Bara til viðmiðunar þá vinn ég við að forsteypa húseiningar, ekki hjá öflugasta fyrirtækinu í bransanum en örugglega með þeim betri, hjá mínu fyrirtæki leikum við okkur að því að steypa einingar í 200+ 2m einbýlishús með raflögnum og marmaraklæðningu á þessum tíma og það ekki á nálægt því fullum afköstum.

Þess vegna finnst mér þetta svooolítið langur afgreiðslutími á einni rúllugardínu.

8.6.08

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Austurríki 0 - 4 Cróatía (0-1)
Þýskaland 2 - 0 Pólland (2-0)

7.6.08

Euro 2008. Leikir dagsins. Mín spá.

Swiss 1- 2 Tékkland (0-1)
Portugal 1 - 0 Tyrkland (2-0)

6.6.08

Gamlir menn geta verið snöggir að hugsa!

Eldri maður í Suður Karólínu, Tom að nafni, átti stóran búgarð í útjaðri bæjarins. Hann var með stóra fallega tjörn á lóðinni sinn ekki langt frá búgarðinum. Hún var útbúin þannig að það var afar auðvelt og jafnvel freistandi að synda í henni ef vel viðraði. Við tjörnina voru stór og falleg epla og perutré. Kvöld eitt eftir mat, ákvað Tommi gamli að ganga niður að tjörninni og athuga hvort ekki væri allt í lagi þar. Hann greip með sér 10 lítra fötu til að tína nokkur epli og perur í. Þegar hann kom nær tjörninni heyrði hann hlátrasköll og glaum. Svo sá hann að það var hópur af ungum konum sem voru að baða sig naktar í tjörninni hans. Hann ræskti sig hátt svo þær yrðu hans varar og ekki stóð á viðbrögðum. Þær þustu allar í dýpri enda tjarnarinnar og ein þeirra hrópaði „Við komum ekki uppúr fyrr en þú ert farinn!“ Tommi gamli setti í brýrnar og sagði, „Ég er ekki hér vina, til þess að glápa á berar konur eða til að reka ykkur uppúr!“ Hann lyfti fötunni hátt á loft og sagði svo
„Ég kom bara til að fóðra Krókódílanna!

Dr. Phil og plastið


Ég þoli ekki Dr. Phil, höfum það á hreinu en það er hinns vegar erfitt að komast hjá því að sjá eða heyra eitthvað frá honum þar sem hann er endalaust í sýningu á Skjá Einum.
Einmitt í gær var ég fyrir því að verða litið á skjáinn þegar Doktorinn var að hella úr viskubrunni sínum, í þetta skiptið brá mér þó meira en vanalega því að hjá honum voru 3 ungar konur sem allar voru óánægðar með brjóstin á sér.
Ég hélt í sakleysi mínu að þær væru komnar þangað til að ræða málin við Doktorinn eins og oftast er þegar fólk fer til sálfræðings, en nei aldeilis ekki, þarna voru þær komnar í sjónvarpssal til að sannfæra Phil um af hverju þær ættu að fá sílikon túttur í boði þáttarins, sú sem mestann sannfæringarkraftinn hefði fengi plastið.
Ein var svo á endanum svo sannfærandi að Dr. Phil áhvað að splæsa plasti í allar sex tútturnar við mikla gleði þessara ólánsömu þriggja kvenna og salurin fagnaði með í hysterísku sílikon kasti.
Svona eiga sálfræðingar að vera.

3.6.08

Dynasty á Skjá Einum!


Skjár Einn hefur tekið til síðdegissýninga sápuóperuna Dynasty en framleiðsla þeirra þátta stóð yfir frá árinu 1981-1989.
Eflaust hafa þeir fengið þessa þætti ókeypis og eflaust er einhverjir sorglegir einstaklingar sem fagna sýningu þessara þátta, ég bara fyllist viðbjóði.

1.6.08

Carmina Burana


Við skötuhjú (verð að fara að gera eitthvað í þessu skötuhjúabulli) skelltum okkur á tónleika í Langholtskirkju í kvöld að hlusta á nokkra sameinaða kóra flytja verk Carl Orff, Carmina Burana. Einsöngvarar voru Bergþór Pálsson, Diddú og Þorgeir Andrésson.
Það er skemmst frá því að segja að þessir tónleikar voru æðislegir, tónleikar sem byrja og enda á O Fortuna geta bera verið ógleymanlegir, þvílík gæsahúð!


Fann þetta á youtube, hljóðgæðin eru ekki góð en ég fékk samt gæsahúð við að setja þetta í gang : )



Verð að bæta því við að á bekknum fyrir framan okkur var kona á mínum aldri (stelpa) sem sofnaði þegar að c.a. 10 mín voru búnar af tónleikunum og svaf til enda, stóð engu að síður upp og tók þátt í standandi uppklappinu sem fór fram, en ég gat ekki annað en vorkennt ræflinum fyrir að borga 3000 kr fyrir svona snilldar tónleika og sofa þá svo af sér líkt og hún hefði sofnað yfir hádegishléinu á Sjónvarp Alþingi : )

En áður en við fórum á tónleikana skelltum við okkur á veitingastaðinn Madonna á Rauðarástíg og fengum okkur að borða.
Góður matur, flott þjónusta og kósý húsnæði lögðu grunninn að frábæru kvöldi.
Hér er daman að skoða matseðilinn.

Íslenska handbolta landsliðið brillerar!

Já enn einu sinni er íslenska landsliðið að standa undir væntingum, núna er liðið að spila í undankeppni í Póllandi og tilgangurinn er sá að tryggja tátttöku á ólympíuleikunum í Kína í sumar.
Ekki byrjaði liðið gæfulega gegn slöku liði Argentínu, sigruðu þó með óþægilega litlum mun, ég hugsaði með mér að þeir hljóta að hafa verið að slaka á gegn þeim enda eru Argentínu menn álíka hátt skrifaðir í handbolta og Íslendingar eru í fótbolta.
Svo í gær steinlágu okkar menn gegn Pólverjum og í dag eigum við svo okkar eina séns á ólympíu þátttöku byggðan á sigri á Svíum : )
Good luck with that.

Viðbót:
Strákarnir okkar voru að enda við að rúlla yfir Svíana, ég biðst afsökunar á neikvæðninni hér að ofan : )