27.9.07

Scottie Pippen að fara að spila í Finnlandi !

Ég rakst á þess frétt á netinu og verð að segja að ég varð kvumsa : )
Já þessi sex-faldi NBA meistari með Chicaco Bulls kvu vera að skrifa undir samning við finnska liðið Torpan Pojat (ToPo) um að spila með þeim tvo leiki, einn í desember og hinn í janúar.
Pippen sem er orðinn 41. árs gamall er þó ekki eina NBA stjarnan sem leikur í Finnlandi því Dennis Rodman sem líka lék með Chicaco Bulls og varð með meistari a.m.k. einu sinni lék með ToPo einn leik árið 2005.

Kannski að Pétur Guðmunds gæti gert góða hluti hjá Jan Mayen Dunkmasters ?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jan Mayen Dunkmasters.

Snilldar nafn á hljómsveit. :)

M2

M4 sagði...

Tja, Jan Mayen er auðvitað til, spurning um að skíra plötu þá Dunkmasters ?