18.9.07

Pole Fitness !

Svona hljóðar auglýsing frá Heilsuakademíunni :

Heilsuakademían kynnir Pole Fitness í fyrsta sinn á Íslandi !
Pole Fitness hefur slegið í gegn víða í Evrópu og eru sífellt fleiri líkamsræktarstöðvar erlendis að taka upp Pole Fitness.

Pole Fitness er alþjóða líkansræktarkerfi þar sem súla er notuð sem megin líkamsræktartækið. Í Pole Fitness er blandað saman styrktaræfingum og dansi þar sem styrktaræfingarnar byggjast mest upp á æfingum þar sem stuðst er við súluna.
Mikið er lagt upp í tækni og styrktaræfingum og þú kemst í frábært form eftir stuttan tíma.
Pole Fitness er frábær líkamsrækt þar sem dansi, styrk, úthaldi og skemmtun er blandað saman !
Kennarar Heilsuakademíunar í Pole Fitness hafa hlotið alþjóðleg kennslu réttindi í Pole Fitness.


Já þannig hljóðar það.
Glöggir lesendur eru líklega búnir að átta sig á því að hér er á ferðinni ekkert annað en hið alræmda og þrælbannaða þjóðfélagsmein "súluskak" !

Ég er farinn að halda að nýr eigandi Orkuversins (Heilsuakademíunar) sé hinn gríðar glaðbeitti Geiri, gjarnan kenndur við Goldfinger.
Einnig finnst mér gott til þess að vita að meyjarnar (kennarnir) hans Geira hafi stundað skakið víða um lönd áður en hingað er komið : )

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

og ertu ekki búinn að skrá þig, móageitur panta þig kannski á næsta móarí ;-)
grrrrrrr

M3

M4 sagði...

Hef einmitt verið að velta þessu fyrir mér, en held að ég sleppi þessu : )

Nafnlaus sagði...

Þú ert fæddur til að skaka.

M2