30.1.06

Tequila suicide


Tequila hefur alla tíð verið skemmtilegur drykkur og orðið þess valdur að menn og konur vakna dagin eftir neyslu drykkjarins með öskrandi höfuðverk og nagandi samvisku.
En hér er nýjasta leiðin til að njóta veigana, þessi að ferð er kölluð " Tequila Suicide "
gerið eftirfarandi :
1. Skellið í ykkur staupi af Tequila
2. Sjúgið salt uppí nefið
3. Kreistið Lime í augun á ykkur

Þetta getur ekki klikkað !


Satan.

26.1.06

Söngvakeppni sjonvarpsins 2006 taka 3

Lögin sem komust áfram eftir fyrstu undanúrslitakeppnina, 21. janúar:

Það sem verður eftir Hallgrím Óskarsson, í flutningi Friðriks Ómars
Stundin - staðurinn eftir Ómar Þ. Ragnarsson, í flutningi Þóru Gísladóttur og Edgards S. Atlasonar
Þér við hlið eftir Trausta Bjarnason, í flutningi Regínu Óskar
Strengjadans eftir Davíð Olgeirsson, í flutningi höfundar

Svo tók ég eftir því að ótrúlega margir þátttakendur eru í Hvítasunnuflokknum !
T.D. báðir söngvararnir í lagi Ómars Ragnarssonar, bakraddasöngkonan Fanný í laginu eftir Hallgrím Óskarsson og söngkennarinn frá Hvolsvelli og sá sem samdi lagið sem hún söng eru bæði í Hvítasunnuflokknum !
Hvað er eiginlega á seiði eiginlega ?

Jæja, ég er gríðarlega spenntur að sjá og heyra meira, gaman gaman.

Satan.

Söngvakeppni sjonvarpsins 2006 taka 2

1. María, eftir Roland Hartwell sungið af söngvara Skítamóralls var ekkert spes.

2. Sést Það Ekki Á Mér? eftir Sigurð Örn Jónsson sungið af Matta Matt söngvara Papanna fannst mér ekki virka enda hefur mér aldrei fundist Matti skemmtilegur söngvari.

3. Stundin-Staðurinn, eftir Ómar Ragnarsson í flutningi flutningi Þóru Gísladóttur og Edgards S. Atlasonar hefði sómt sér vel í danslagakeppni síldarvinnslunar á Siglufirði árið 1963 en ekki hér ! Svo fékk maður einhverskonar bjána hroll þegar að Ómar kom á svið í miðju lagi til að blístra smávegis....uuhhhuuhhuhuhu.......

4. Ég Sé, eftir Írisi Kristinsdóttur sungið af henni sjálfri og það var einmitt stærstu mistökin, ágætis lag svo sem en Íris er kaaaasólétt og réði engan veginn við að syngja lagið, var andstutt enda krílið örugglega farið að þrýsta á þyndina og svo hitti hún ekki alltaf á laglínuna.

5. Það Sem Verður, eftir Hallgrím Óskarsson í flutningi Friðriks Ómars var hressandi lag en minnti of mikið á sveiflukónginn Geirmund, en var svo sem ok.

6. Í Faðmi Þér, eftir Ingva Þór Kormáksson sungið af söngkennaranum á Hvolsvelli sem ég man ekki hvað heitir, en hún réði illa við lágu nóturnar í laginu og fær því falleinkunn hjá mér.

7. Þér Við Hlið, eftir Trausta Bjarnason í flutningi Regínu Óskar var langbesta lagið þetta kveld, talsvert mikill keltneskur bragur á laginu sem var þjóðlegt og frumlegt og fínt. Með Regínu sungu fjórir menn úr kórnum Voices Thules og virkaði vel en frábær söngur Regínu gerði samt lagið að öruggum sigurvegara kveldsins.

8. Strengjadans, eftir Davíð Olgeirsson sungið af honum sjálfum, mér fannst ekkert varið í þetta lag en það náði samt að komast í úrslitakeppnina enda skárra en fjögur önnur lög kvöldsins.

Sjá næsta póst fyrir rest af þessu helvíti !

Satan.

Söngvakeppni sjonvarpsins 2006

Ég er mjög ánægður með hvernig RUV ætlar að tækla Eurovision þetta árið, með því að halda svona stóra og flotta forkeppni fáum við vonandi mörg frambærileg lög í spilun og áhugi á þessari hámenningar tónlistarhátíð sem Eurovision er.......ok kannski ekki hámenning en keppnin hefur samt hreðjatak á Íslendingum hvort sem við viðurkennum það eða ekki.
Ég horfði á þennan fyrsta þátt af þremur á laugardagskveld með smá spenningi og þó svo að flest lögin hafi verið veikari en að ég hafði vonað þá var þetta samt skemmtilegt, að vísu fannst mér kynnarnir frekar stirðir og klaufalegir en það var samt allt í lagi, bein útsending og svoleiðis.
En lögin eru samt það sem allt þetta snýst um.

Sjá næsta póst vegna bilana í þessu Blogger helvíti !

Satan.

24.1.06

Vesen

Það er eitthvað helvítis vesen með þessa síðu, ég skrifaði heilmikinn póst um Söngvakeppni Rúv í gær kveld en get ekki sett hann inn einhverja hluta vegna.
Furðulegasta mál.

Satan.

20.1.06

Ráð undir rifi hverju !

Morðingjar athugið !
Ertu í vandræðum með að losa þig við lík ?
Bútaðu það þá bara niður í hentuga hluta pakkaðu þeim svo niður í kassa og sendu þér þá svo bara með DHL, þá sérðu þá aldrei aftur !


Satan.

18.1.06

Bíó: House of 1000 Corpses (2003)


Leikst: Rob Zombie, hingað til aðallega þekktur sem tónlistarmaður og rokkari.
Aðalhlutverk: Enginn sem þú kannast við.

Eins og nafn myndarinnar gefur sterklega til kynna þá er þetta hryllingsmynd og sem slík bara annsi fersk.
Myndin fjallar um tvö ung pör sem eru á flakki um afskekktari svæði Texas í þeim tilgangi að kynna sér sögusagnir af morðingjum og misyndisfólki svæðisins og lenda svo í klónum á sadískri og snargeðveikri fjölskyldu.

Þessi mynd þrælvirkar í að koma hrolli í mann og þess vegna er maður jú að horfa á svona mynd.
Það er búið að gera framhald af þessari mynd og heitir hún Devils Rejects og mun ég fjalla hum hana strax og ég er búinn að horfa sem verður fljótlega...úúúú...spennó !

Einkunn: 7/10


Satan.

17.1.06

Bíó: 21 Grams (2003)


Leikst : Alejandro González Iñárritu (Amores perros)
Aðalhlutverk : Sean Penn, Naomi Watts, Benicio Del Toro.

Það er erfitt að lýsa þessari mynd, í henni er flakkað töluvert í tíma og maður kynnist í rólegheitum aðalpersónunum sem tengjast þegar á myndina líður.
Myndin fjallar um syrgjandi móður leikna af Naomi Watts, fársjúkan stærðfræðing leikinn af Sean Penn og fyrrverandi glæpamann endurfæddann í trúnni sem er leikinn af Benicio Del Toro, þessir þrír einstaklingar tengjast svo þegar að sorglegt slys verður.

Þessi mynd er alveg þræl fín og hiklaust hægt að mæla með.

Einkunn : 7/10


Satan.

15.1.06

Bíó: The Wedding Crashers (2005)


Í aðal eru :Owen Wilson, Vince Vaughn, Christopher Walken, Rachel McAdams.
Þessi mynd er alveg ágæt en ekkert meira en það.
Mjög tíbísk formúlu mynd sem þú hefur séð marg oft áður en pælingin er sniðug.
Hún fjallar um tvo vini sem stunda það að vera boðflennur í brúðkaupum í þeim eina tilgangi að drekka og eta frítt og negla gellur.
Helsti galli myndarinnar er að hún er alltof löng(119 min) en hún hefði mátt vera 30 mín styttri.

Einkunn : 6/10


Satan.

14.1.06

Sjálflýsandi svín


Vísindamenn í Tævan eru búnir að rækta sjálflýsandi svín, en eins og allir hugsandi menn og konur vita hefur verið gríðarleg vöntun á slíku í heiminum !
Það hlítur að vera uppörfandi fyrir krabbameinssjúklinga og alla hina sem eru haldnir ólæknandi kvillum að lesa um þetta gríðarlega afrek snillingina frá Tævan !

Satan.

11.1.06

Ekki láta útlitið blekkja þig # 2


John Kerry leggur VR lið í baráttunni !


Satan.

9.1.06

Metanbombur

Nýjasta útspil olíufélagana í stríðinu um að halda í bensín og dísel notendur er að koma fyrir agnarsmáum belgjum ekki ósvipuðum í laginu og hylkin sem ljósmyndafilmur eru geymdar í, (ef að einhver man ennþá hvernig svoleiðis lítur út) í húddinu á Metangas bílum !
Þessi hylki springa svo eftir áhveðin fjölda ekinna kílómetra með þeim afleiðingum að það kviknar í bílunum !
Aðgerð þessi er til þess fallinn að draga úr trausti almennings á Metangasi sem orkugjafa, og mun það örugglega virka !

Þeir svífast einskins þessir andskotar !


Satan.

7.1.06

Fuglaflensa


Nú eru byrjaðir að koma í pósti bæklingar frá ferðaskrifstofunum, í gær kom einn frá Heimsferðum og var aðal áfangastaðurinn Tyrkland. Flott hótel, strendur og allskonar fíenerí.
En málið er bara það að það er kominn upp fuglaflensa í Tyrklandi og það dregur pínulítið...nei...það slekkur alveg áhugann á því að fara til Tyrklands, og reyndar allra þeirra landa sem eru með fársjúkan fiðurfénað ráfandi um göturnar.

Þetta gæti orðið annað stór áfall fyrir ferðaiðnaðinn á örfáum árum, fyrst hryðjuverkaárásir útum allt og núna fuglaflensa.

Satan.

4.1.06

Ráð undir rifi hverju !

Hefur þú áhyggjur af því að tennurnar þínar verði kjánalega blá-rauðar eftir að hafa sullað allt kveldið í rauðvíni ?
Laaaangbezt er að drekka þá bara eins og eina flösku af hvítvíni áður en þú ferð að sofa, og þá verða tennurnar fínar !


Satan.

2.1.06

Portsmouth

Forríkur Rússi er víst í þann vegin að fara að kaupa helmingshlut í knattspyrnufélaginu Portsmouth á Englandi !
Þá finnst mér rétt að spyrja, ef að Alexander Gaydamak er svona ógeðslega ríkur af hverju er hann þá bara að kaupa helmingshlut og af hverju Portsmouth sem er skíta lið ?


Satan.

1.1.06

Fálkaorðan

Það er alltaf gaman að skoða hverjir fá Fálkaorðuna sem er veitt tvisvar á ári einhverjum útvöldum sem þótt hafa staðis sig veli í hinu og þessu starfi !
Þetta nafn sló mig mest í þetta skiftið : Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, Selfossi, stórriddarakross, fyrir störf í opinbera þágu !

Alger brandari !


Satan.

FL Grúbb

Kræst, Þessi Ragga þarna fyrrverandi FL Grúbb gella fékk 130 millur í starfslokasamning !
Ekki skrítið að hún reif ekkert kjaft þegar að henni var sparkað út !

Satan.

Gleðilegt Ár !


Satan óskar ykkur öllum gleðilegs árs !