13.10.09

Þetta gerðist síðast þegar Liverpool varð Enskur meistari.

Ég varð 19 ára.

Microsoft kom með Windows 3.0.

Vestur Þýskaland sigrar Argentínu 1-0 á HM í Ítalíu.

Detroit Pistons sigrar Portland Trail Blazers í úrslitum NBA .

Greta Garbo lést.

Ghost var vinsælasta bíómyndin í heiminum.

Home Alone og Pretty Woman komu þar á eftir.

Njarðvík er bikarmeistari karla í körfuknattleik.

Dances With Wolfs fékk Oscarinn sem besta myndin.

Kevin Costner fékk Oscarinn sem besti leikstjórinn.

Depeche Mode gefa út 7 breiðskífu sína "Violator".

Tenórarnir 3 halda sína fyrstu opinberu tónleika.

Stevie Ray Vaughn deyr í þyrluslysi.

Milli Vanilli viðurkenna að þeir "mæmi" og neyðast til að skila Emmy verðlaunum sem þeir fengu sem bestu söngvararnir.

The Alan Parsons Project, Eurythmics, The Jackson 5 og Spandau Ballet hættu öll að starfa.

James Buster Douglas sigraði Mike Tyson á rothöggi í 10 lotu og vann þannig heimsmeistaratitilinn, líklega þann óvæntasta í box sögunni.

Nick Faldo vann Masters og Opna Breska.

Phil Mickelson vann U.S. Amateur.

Stefan Edberg vann Wilmbledon mótið í tennis karla.

Martina Navratilova vann Wilmbledon mótið í tennis kvenna.

Kalda stíðinu líkur.

Árni Kópsson er Íslandsmeistari í torfæruakstri.

Apple Macintosh Classic er kynnt til sögunar.

Þáttur #2 af The Simpsons er sýndur í Amerísku sjónvarpi.

Fram eru Íslandsmeistarar í knattspyrnu karla.

Twin Peaks þættirnir slá í gegn.

Nothing Compares 2 U með Sinéad O'Connor er vinsælasta lagið í heiminum.

Vanilla Ice slær í gegn með "Ice Ice Baby".

Staupasteinn (Cheers) vinnur Emmy verðlaunin sem besti gamanþátturinn.

Magic Johnson, LA Lakers er valinn MVP í NBA.

Fyrsti McDonalds staðurinn opnar í Moskvu.

Infiniti og Lexus eru splunkuný merki á bílamarkaðinum.

Úlfar Jónsson varð Íslandsmeistari karla í golfi.

Númerabirting í símum er kynnt til sögunar.

Hubble sjónaukinn sendir fyrstu myndirnar til jarðar.

Uppistandarinn Seinfeld byrjar með nýja gamanþætti sem slá rækilega í gegn.

Bjarni Friðriksson er kosinn íþróttamaður ársins fyrir árangur í júdó.

Eitt Lag Enn með Stjórninni keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision og lendir í 4 sæti.

3 ummæli:

M3 sagði...

VÁ SHIT hvað það er langt síðan.....þú 19 ára, Nick Faldo best golfarinn, FRAM íslandsmeistarar, ég held að það sé kominn tími á Poolarana ;-)...yes I said it...

M4 sagði...

Já ég er auðvitað sammála þér með að það sé kominn tími á LFC : )
En fyrst að þetta blogg er nánast orðið að fótboltabloggi þá ákvað ég að henda þessum staðreyndum hérna inn, 19 ár er helvíti langur tími og margt hefur auðvitað breyst á þessum árum.
En varðandi fótboltann þá finnst mér fyndið (sorglegt) til þess að hugsa að það er styttra síðan að Blackburn varð meistari en Liverpool og samt finnst manni þeir alltaf hafa verið skítalið : )
Svo er það auðvitað Leeds : )

Nafnlaus sagði...

Híííí.... og næst þegar þeir vinna dollu............ erum við í sumarleyfi á Mars, búið að banna tennis..... vegna ofbeldis, Tuborg orðinn langbesti bjórinn, Ástþór Magnússon orðin forseti.......hííí... sem sagt...........................................long long long time from here, eða NEVER..

Venlig Hilsen,
R.Giggs