28.10.09

McDonalds, hinnsta kveðja

Ég hef hvorki oftar né sjaldnar en tvisvar sinnum snætt hamborgara á McDonalds á íslandi, í fyrra skiptið fór ég að sjálfsdáðum í barnslegri forvitni um þessa heimsfrægu borgara en í það seinna þáði ég fæði þar sem ég var að hjálpa ættingja sem vildi endilega tríta mig í mat. Í bæði skiptin furðaði ég mig á því hvers vegna þessi skyndibitakeðja væri yfirhöfuð starfandi svona miðað við hversu lítið er varið í matinn.
En núna á semsagt að loka þessum útibúum McDonalds á Íslandi vegna þess að ekki þykir svara kostnaði að flytja inn allt hráefnið í þetta gums, ekki mun ég sakna McDonalds enda er lítið mál að fá betri borgara ef mann langar yfirhöfuð í slíkt, Búllan, American Style og Ruby's toppa McDonalds enítæm og það gera reyndar flestir bensínstöðvaborgarar líka.

En nú vill svo til að ég hef keyrt framhjá McDonalds í Fákafeni rétt fyrir hádegi síðustu 3 daga og við mér blasti löng bílaröð við lúguna alla dagana, c.a. 10-15 bílar í bæði skiptin, auk margra á stæði. Þá spyr ég, er fólk virkilega að fá sér þessa ofmetnu drullu bara útaf því að nú eru að verða síðustu forvöð hér á landi?
Ég sver það ég færi ekki þó þeir væru að gefa borgarana þessu síðustu daga.

16.10.09

Ísland í dag

Í gær átti ég erindi í Elko.
Þar sem ég renni í hlað tek ég eftir karlmanni sem stendur þar á bílaplaninu og virðist eins og hann finni ekki bílinn sinn.
Ég legg í stæði og stíg út, þá er maðurinn kominn að bílnum mínum og virðist bíða eftir því að ég stígi út úr bílnum.
Fyrsta sem mér dettur í hug er að bíllinn hans sé rafmagnslaus og hann ætli að spyrja um startkapla enda ekki nema 3 dagar liðnir frá því að ég reddaði einum bíl eiganda þannig.
En mér til mikillar furðu vindur garmurinn sér að mér og spyr mig hvort ég eigi ekki eitthvað klink handa sé, ég get ekki neitað því að mér bara dauðbrá við þessa spurningu, aulaði því svo útút mér að ég væri ekki með neitt svoleiðis á mér, væri bara með kort sem var auðvitað satt.
En ég varð svo svakalega hissa við þetta að ég var lengi að hugsa um þetta atvik á eftir.

Í fréttunum áðan var verið að fjalla um mál erlendrar konu sem virðist hafa verið flutt til landsins í þeim eina tilgangi að starfa sem mella, ég verð að játa að þetta mál hefur að mestu farið framhjá mér, en í viðtali við dómsmálaráðherra kom fram að götuvændi sé líklega orðin staðreynd hér í Reykjavík.

Sumsé, götuvændi og betl er þá orðið eitthvað sem maður má búast við að sé komið til að vera.
Svona er Ísland í dag.

Enski. Leikir helgarinnar. 9 umferð

13.10.09

Þetta gerðist síðast þegar Liverpool varð Enskur meistari.

Ég varð 19 ára.

Microsoft kom með Windows 3.0.

Vestur Þýskaland sigrar Argentínu 1-0 á HM í Ítalíu.

Detroit Pistons sigrar Portland Trail Blazers í úrslitum NBA .

Greta Garbo lést.

Ghost var vinsælasta bíómyndin í heiminum.

Home Alone og Pretty Woman komu þar á eftir.

Njarðvík er bikarmeistari karla í körfuknattleik.

Dances With Wolfs fékk Oscarinn sem besta myndin.

Kevin Costner fékk Oscarinn sem besti leikstjórinn.

Depeche Mode gefa út 7 breiðskífu sína "Violator".

Tenórarnir 3 halda sína fyrstu opinberu tónleika.

Stevie Ray Vaughn deyr í þyrluslysi.

Milli Vanilli viðurkenna að þeir "mæmi" og neyðast til að skila Emmy verðlaunum sem þeir fengu sem bestu söngvararnir.

The Alan Parsons Project, Eurythmics, The Jackson 5 og Spandau Ballet hættu öll að starfa.

James Buster Douglas sigraði Mike Tyson á rothöggi í 10 lotu og vann þannig heimsmeistaratitilinn, líklega þann óvæntasta í box sögunni.

Nick Faldo vann Masters og Opna Breska.

Phil Mickelson vann U.S. Amateur.

Stefan Edberg vann Wilmbledon mótið í tennis karla.

Martina Navratilova vann Wilmbledon mótið í tennis kvenna.

Kalda stíðinu líkur.

Árni Kópsson er Íslandsmeistari í torfæruakstri.

Apple Macintosh Classic er kynnt til sögunar.

Þáttur #2 af The Simpsons er sýndur í Amerísku sjónvarpi.

Fram eru Íslandsmeistarar í knattspyrnu karla.

Twin Peaks þættirnir slá í gegn.

Nothing Compares 2 U með Sinéad O'Connor er vinsælasta lagið í heiminum.

Vanilla Ice slær í gegn með "Ice Ice Baby".

Staupasteinn (Cheers) vinnur Emmy verðlaunin sem besti gamanþátturinn.

Magic Johnson, LA Lakers er valinn MVP í NBA.

Fyrsti McDonalds staðurinn opnar í Moskvu.

Infiniti og Lexus eru splunkuný merki á bílamarkaðinum.

Úlfar Jónsson varð Íslandsmeistari karla í golfi.

Númerabirting í símum er kynnt til sögunar.

Hubble sjónaukinn sendir fyrstu myndirnar til jarðar.

Uppistandarinn Seinfeld byrjar með nýja gamanþætti sem slá rækilega í gegn.

Bjarni Friðriksson er kosinn íþróttamaður ársins fyrir árangur í júdó.

Eitt Lag Enn með Stjórninni keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision og lendir í 4 sæti.

6.10.09

Skólaverkefni

Hér er nýjasta verkefnið mitt komið, myndin var frumsýnd ásamt mörgum öðrum síðasta föstudag.
Málið var að við áttum að gera persónulega mynd sem hugsuð væri sem einskonar kynning á okkur, skilyrðin voru þau að við urðum að gera allt sjálf þ.e. skrifa handrit, lýsa, taka og klippa og hljóðvinna. Okkur var samt skipt í hópa þannig að við vorum að aðstoða hvert annað í tökunum.

Ég mæli með því að leyfa videóinu að hlaðast og horfa svo í full screen enda veitir ekki af öllum skjánum fyrir mig : )
Svo er bara endilega að tjá sig í commentum : )

Hafliði - Kynning from Kvikmyndaskóli Íslands on Vimeo.

5.10.09

Til þeirra sem versla við Vífilfell : )



Já ég ætla bara að halda áfram að kaupa drykki frá Agli, Bónus og Vífilfell nei takk.