Ég hef aldrei verið aðdáandi þess samgöngukerfis sem er í boði fyrir okkur Reykvíkinga, Strætó hefur alltaf verið og mun líklega alltaf vera alveg tilgangslaust apparat og mun varla geta þjónað nema örfáum sem eru svo heppnir að hitta á að leiðakerfi strætó samræmist þeim.
Einusinni hitti svo skemmtilega á að strætó breitti leiðum sínum þannig að þær féllu vel að mínum þörfum en það entist ekki lengi, leiðirnar eru sífellt í breytingum og því þarf notandinn stanslaust að vera að aðlagast nýjum leiðum og misgóðum.
Á bus.is prufaði ég að slá inn í leiðsöguvélina það sem myndi henta mér til að komast í skólann á réttum tíma og svona lítur útkoman út : )

Ég þyrfti semsé að leggja af stað heiman frá mér kl 07:20 (skólinn byrjar kl 09)
Ferðalagið tæki svo c.a. 80 mín, teknir 3 strætóar og ég ætti að vera svo kominn í skólann vel tímanlega : )
Thanks but no thanks.
Ef þið þekkið einhvern laghentann sem væri til í Grænu Þrumuna fyrir lítið fé þá endilega látið vita.
6 ummæli:
þú værir fljótari að labba þetta!!!
Mikið fljótari : )
Helvítis strætó!
Sjittfokk!!
Nú er bara að draga fram reiðhjólið!
Á ekki hjól : /
Svo má bæta við að Þruman seldist í gærkveld : )
"Þruman II" ??
Nei varla : (
Skrifa ummæli