5.9.09

Af hverju notar maður ekki strætó?

Nú þegar það er ljóst að viðgerðarkostnaður á Grænu Þrumunni muni verða vel á annað hundrað þúsund kr bara til að koma honum í gegnum skoðun er ljóst að skoða verður aðrar leiðir til að koma sér og sínum í og úr skóla og vinnu.
Ég hef aldrei verið aðdáandi þess samgöngukerfis sem er í boði fyrir okkur Reykvíkinga, Strætó hefur alltaf verið og mun líklega alltaf vera alveg tilgangslaust apparat og mun varla geta þjónað nema örfáum sem eru svo heppnir að hitta á að leiðakerfi strætó samræmist þeim.
Einusinni hitti svo skemmtilega á að strætó breitti leiðum sínum þannig að þær féllu vel að mínum þörfum en það entist ekki lengi, leiðirnar eru sífellt í breytingum og því þarf notandinn stanslaust að vera að aðlagast nýjum leiðum og misgóðum.

Á bus.is prufaði ég að slá inn í leiðsöguvélina það sem myndi henta mér til að komast í skólann á réttum tíma og svona lítur útkoman út : )



Ég þyrfti semsé að leggja af stað heiman frá mér kl 07:20 (skólinn byrjar kl 09)
Ferðalagið tæki svo c.a. 80 mín, teknir 3 strætóar og ég ætti að vera svo kominn í skólann vel tímanlega : )
Thanks but no thanks.

Ef þið þekkið einhvern laghentann sem væri til í Grænu Þrumuna fyrir lítið fé þá endilega látið vita.

6 ummæli:

M3 sagði...

þú værir fljótari að labba þetta!!!

M4 sagði...

Mikið fljótari : )
Helvítis strætó!

M2 sagði...

Sjittfokk!!
Nú er bara að draga fram reiðhjólið!

M4 sagði...

Á ekki hjól : /
Svo má bæta við að Þruman seldist í gærkveld : )

M2 sagði...

"Þruman II" ??

M4 sagði...

Nei varla : (