Í áfanganum erum við að læra um listasögu og þá aðallega hvernig kvikmyndir tengjast listasögunni.
Þessi sýning í Listasafninu er mjög umdeild og þykir safnið hafa tekið mjög niður fyrir sig með sýningunni, en af hverju?
Jú þarna er semsagt verið að sýna málverk máluð eftir mynd (ramma) sem tekin er úr kvikmynd, semsagt málað eftir mynd nánast "painting by numbers" og það finnst elítunni ekki fínt.
Svo er annað sem pirrar marga og það er spurningin hver er hinn raunverulegi listamaður?
Sko, Friðrik Þór gerir myndina Börn Náttúrunar og í henni má finna mörg mjög flott skot þó svo að myndin hafi verið hrútleiðinleg. Svo er tekin einn (reyndar fleiri) rammi úr myndinni sem þykir extra flottur, myndin er svo send til Kína þar sem hópur málara málar risastóra mynd eftir myndinni, þá er myndin send hingað til lands og áður en hún er hengd uppá vegg til sýningar málar Friðrik Þór nafnið sitt í hornið og gefur þannig til kynna að hann hafi gert myndina.
En hver er hinn raunverulegi höfundur myndarinnar, máluðu myndarinnar semsé?
Er það Friðrik Þór sem er leikstjóri hennar eða er það Ari Kristinsson sem tók myndina og er ábyrgur fyrir því sem fest var á filmu?
Eða er það hinn nafnlausi Kínverji eða Kínverjar sem máluðu málverkið eftir ljósmynd?
Þessi spurning er að gera listasnobbarana alveg brjálaða og þess vegna vilja þeir ekki sjá svona lagað á Listasafni Reykjavíkur
Hvað um það, ég braut að sjálfsögðu gegn reglunum og tók myndir af myndunum sem voru málaðar eftir myndum teknar ú bíómynd : )
Fyrstu 5 myndirnar eru úr Börnum Náttúrunar (1991) og síðustu 3 eru úr Forbrydelsens element (1984) eftir Lars Von Trier.
Smella á mynd til að stækka.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli