Svona til að þið séuð "up to date" og einnig til að forða þessu bloggi mínu frá því að verða fótboltablogg þá koma hér smá fréttir frá náminu.
Síðustu 2 vikur hef ég verið í kúrs í "lýsingu á setti".
Hálfdán Theodórsson er sviðsstjóri okkar sem erum á tæknisviði skólans og sér hann einnig um þennan kúrs.
Við settum upp fjögur mismunandi sett sem öll voru lýst á mismunandi hátt og notuðum við tækifærið og settum upp litla leikþætti fyrir hvert sett.
Svo var það sem við tókum upp klippt til og notað sem fræðsluefni um hvernig lýsingu þarf til að ná þeirri stemmningu sem við vorum með.
Rosalega gaman allt og fræðandi.
Fyrsta hét Sólarkaffi og gerist á kaffihúsi, lýsingin átti að lýkjast mjög sólríkum og björtum degi.
Önnur myndin var nokkurnskonar "Film Noir"
Sú þriðja var "Guðfaðirinn" og var sett upp sena þar sem tveir "bófar" koma á fund "guðföðurinns" þar fékk ég að leika annann bófann : )
Og sú fjórða var "Breiðholt" og átti að gerast í venjulegri stofu, viðfangsefnið var tveir menn að þrátta um ágæti hljómsveitarinnar Abba.
Eftir klippingu og hljóðvinnslu var efnið tilbúið til sýningar í bíósal skólanns og hófst sýning kl 13 í gær föstudag fyrir fullum sal, viðtökur voru góðar og við vorum öll sátt við útkomuna.
Í næstu viku byrjum við svo á klippi kúrs þar sem við fáum að kafa dýpra í Final Cut Pro forritið.
Hlakka til : )
Svo má bæta við að okkur var boðið að vera viðstödd við tökur á nýrri mynd Friðriks Þórs á fimmtudag síðasta.
Hann var að taka í stóru einbýlishúsi í Kópavogi, eini leikarinn sem sem var í því atriði var Hilmir Snær.
Það var auðvitað mjög spennandi að sjá þetta fólk á sínum heimavelli, mjög afslappað andrúmsloft einkenndi allt þarna, en mér skilst að þannig sé það alltaf hjá Friðriki Þór.
1 ummæli:
Auðvitað lékst þú bófann, ertu ekki sunnlendingur?
M7
Skrifa ummæli