Á föstudaginn fyrir viku síðan var hringt í sviðsstjórann okkar í Kvikmyndaskólanum hann Hálfdán, símtalið kom frá Loftkastalanum þar sem Menntaskólinn Við Sund hefur verið með nemendasýningu sína á söngleik um Harry Potter.
Á laugardagskvöld vorum við mættir kl 20, en sýning átti að byrja kl 21 en henni seinkaði til 21:30.
Þar sem við tókum eina cameru með okkur og einn microfón þá notuðum við tækifærið og tókum upp slatta baksviðs, viðtöl og fl.
Á meðan að á sýningu stóð vorum við aðallega að undirbúa okkur fyrir upptökur á sunnudagskveldinu, skoða hvar væri best að setja camerur og þessháttar.
Sýningu lauk rétt fyrir kl 01 og var maður að skríða í bólið um kl 02.
Á sunnudagskvöld var ákveðið að mæta kl 19 til að hafa nægan tíma í uppsetningu á camerum og mírofónum.
Það gekk allt saman vel og vorum við tilbúnir áður en sýning hófst : )
Reyndar klikkaði svo hljóðkerfið aðeins í Loftkastalanum í tveimur lögum þannig að þegar að sýningu var lokið og allir áhorfendur voru farnir úr salnum var ákveðið að endurflytja þessi tvö lög til að við næðum öllu efninu í bestu mögulegu gæðum.
Þessu ævintýri lauk því þegar vel var liðið á aðfararnótt mánudags og ég var kominn heim rétt fyrir kl 02.
Mætti svo þreyttur og illa sofinn í skólann á mánudagsmorgun reynslunni ríkari.
Svo er eftir að klippa þetta allt saman en það á eflaust eftir að reynast mikil vinna þar sem við tókum upp á 4 camerur og sýningin var yfir tveggja tíma löng, og svo aukaefnið sem tekið var upp á laugardagssýningunni, í allt er þetta líklega um 10 klt af efni.
Líf og fjör : )
Engin ummæli:
Skrifa ummæli