12.1.09

Skólasetning í dag.

Kvikmyndaskóli Íslands var settur í dag.
Eftir stutta ræðu frá skólameistara fórum við sem erum á 1 og 2 önn tæknisviðs á stuttann fund með yfirstrump sviðsins.
Skóla tími er frá 9-16 og er 1 klt í hádegishlé, þessi tími hentar mér mjög vel.

Mér líst gríðarvel á þetta allt saman og hlakka til að mæta í fyrsta tíma á morgun.

6 ummæli:

M2 sagði...

Verður gaman að fylgjast með. :)

Hversu margir komust inn btw?

M4 sagði...

Skólinn er full skipaður ef frá er talinn handritagerð, og biðlistar skylst mér eftir að einhver hætti við í tæknisviðið.
12 nýjir nemar í tæknisvið.
Annars er fyrsta degi lokið og byrjar þetta vel, storyboard pælingar fyrir hádegi og hópefli eftir hádegi.
Annars fyndið þetta hópefli, 45 manneskjur af öllum stærðum og gerðum að fíflast í þeim tilgangi að kynnast betur, ágætt að það er búið : )
Gaman samt, ekki mis.....

Nafnlaus sagði...

Verður þá vídeóblogg hérna bráðlega ??

Kv. Hr.Giggs (3-0)

M2 sagði...

Greinilega mikið um heimaverkefni.
Bloggið liggur niðri amk. ;)

M4 sagði...

He he, nei ekki mikið af því ennþá, tja nema kannski svona pælinga verkefni, hvernig ætla ég að gera hitt og þetta og svoleiðis.
Málið er bara að allt í einu er dagurinn bara orðinn þétt skipaður, byrja á því að koma börnunum í leikskólann, fara sjálfur í skólann, sækja svo börnin í skólann, undirbúa kvöldmat, koma börnunum í rúmið og þannig fer bara dagurinn : )
Mann fer barasta bráðum að hlakka til atvinnuleysis í sumar ; )

Nafnlaus sagði...

"dagurinn bara orðinn þétt skipaður, byrja á því að koma börnunum í leikskólann, fara sjálfur í skólann, sækja svo börnin í skólann, undirbúa kvöldmat, koma börnunum í rúmið"

Velkominn í hópinn !

Kv. R.Giggs (1-0)