2.1.09

Hversu heimskir.........

.......halda 365 miðlar að Íslendingar séu?
Núna reyna greyin að sannfæra fólk um að þar sem hætt var að rukka afnotagjöld fyrir Rúv nú um áramótin þá sé tilvalið að eyða þeim pening í afnotagjöld af Stöð 2 og því rusli sem þar er í boði!
Halda þessir asnar virkilega að fólk haldi að þar sem það borgar fyrir Rúv hér eftir í formi venjulegra skatta þá eigi það allt í einu auka pening sem sniðugt er að henda í 365?
Fáránlegt fyrirtæki sem alltaf virkar hálf kjánalegt á mig, frétta annállinn hjá þeim var fram reiddur þannig að fréttafólkið kom fram í "camoulflage" með byssur og kynnti allar fréttir ársins klætt sem "terroristar"!
Fréttastofa Stöðvar 2 er djók.

Nenni ekki að pirra mig frekar á þessu rugli.
Djöfull væri svo týbíst að ég ætti svo eftir að vinna fyrir 365 : )

2 ummæli:

M3 sagði...

það er náttúrulega sjálfgefið að þú átt eftir að vinna fyrir þá...hahahahah

En hvernig væri nú að koma með smá jákvæðar fréttir allavega fyrir suma.....og skella inn myndinni af þér að taka á móti stellunni ;-)

Nafnlaus sagði...

Við M3 erum allavega þrælar 365... borgum alltof hátt hlutfall launa okkar í þetta "drasl". M3 gæti fengið ansi marga bjóra á barnum að horfa á boltann fyrir þennan pening.
M3B