20.1.09

Skólafréttir

Það er auðvitað líf og fjör að vera í skóla, það var svo sem vitað mál en engu að síður gaman að fá að upplifa þessa stemningu á gamalsaldri.
Á gamalsaldri segi ég 37 ára maðurinn, en ég er auðvitað að vísa í meðalaldurinn í Kvikmyndaskólanum en hann ku vera 23 eða 24 ár, ég er ekki viss.

Anyhú, á föstudaginn síðasta var ég í hópi nema sem fengum það verkefni að gera stuttmynd eftir eigin hugmynd.
Við vorum send af stað með cameru, hljóðnema og bómu fyrir hann og þrífót, og var afraksturinn svo skoðaður óklipptur seinni part dagsins, skrítið stuff og amatöralegt : )
Gaman að segja frá því að einn "unglingurinn" sem var með mér í hóp sagði mér að honum fyndist ég vera "drullu svalur" að skella mér bara í skóla á þessum aldri.......ríspekkt : )

Í allan dag var ég í tíma hjá hressum náunga sem er snilli í klippingu myndefnis og fór dagurinn í að læra á Final Cut Pro, það var hrikalega gaman og ég get ekki beðið eftir næsta tíma í klippingu.

Á morgun (21/1) er hins vegar komið að mínu prívat verkefni, mínútumynd sem má vera um hvað sem er og fæ ég mér til aðstoðar 3 aðra nemendur til að taka mynd og hljóð, eftir vinnslan er svo eitthvað sem ég mun sjá um sjálfur þ.e. klipping og hljóðvinnsla.
Myndin verður svo skoðuð fullkláruð á mánudaginn af kennurum og nemendum.

Og hvað ætla ég svo að gera í þessu verkefni, jú ég ætla að taka upp 1 mín "matreiðsluþátt" hér í eldhúsinu heima hjá mér í fyrramálið og reikna svo með að geta boðið "aðstoðarfólkinu" í hádegismat þar sem afraksturinn verður snæddur.

Allt að gerast.

1 ummæli:

M2 sagði...

Gaman að lesa þetta.

Ert þú sumsé skrítni gamli kallinn í bekknum? ;)

Terellelley!