30.1.09

Mínútumyndin frumsýnd í dag : )

Í dag var fyrsta sóló verkefnið mitt sýnt fyrir fullum sal í Kvikmyndaskólanum auðvitað ásamt öllum hinum mínútuverkefnunum.
Mörg skemmtileg myndbönd litu dagsins ljós (í myrkri samt enda erfitt að sýna bíó í dagsljósi) en ég var sá eini sem var með matreiðslumynd.
Myndirnar voru auðvitað misjafnar eins og þær voru margar og misvel unnar, ég tók eftir að í sumum var hljóðið ekki gott og stundum svo slæmt að maður heyrði ekki hvað aðalleikararnir voru að segja, það er aldrei gott.
Lýsing var svo auðvitað mis góð eins og gengur sem og myndataka, en í flestum myndum var þetta samt í fínasta lagi.
Hvað mína mynd varðar þá var ég ánægður með útkomuna, myndatakan fín og lýsingin, og í þeim tökum þar sem hljóðið var ekki nógu gott náði ég að laga það í klippi og hljóðvinnslunni þannig að þetta var að mínu mati lýtalaust myndband en það er auðvitað smekksatriði.

Sem sagt vel heppnuð frumraun sem fékk góð viðbrögð og er ég auðvitað ánægður með það.
Set þetta hérna inn þegar ég get til að þið getið séð sjálf.

3 ummæli:

M3 sagði...

Hlakka til að sjá þetta.

Flott að heyra að þú sért að fíla þetta, en átti nú reyndar ekki von á öðru ;-)

M4 sagði...

Jamm þetta er gaman.
Svo held ég að það verði skipt í nýjan hóp eftir helgi og þá verður farið í að gera stutta heimilda mynd.
Líf og fjör : )

Nafnlaus sagði...

á youtube með meistarastykkið, NÚNA.

M7