Jæja, ljúft er að segja frá því að upptakan af mínútumyndinni minni gekk vel og var afraksturinn snæddur í hádegismat af mér og "aðstoðarcrewinu" við góðan orðstýr.
Í dag vorum við svo að taka aðra mínútumynd og var tökustaður í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg, það gekk líka vel, reyndar svo vel að við náðum að byrja á 3 myndinni sem er tekin í húsakynnum Karatefélags Reykjavíkur, á að vera auglýsing fyrir félagið.
Á morgun kl 14 tökum við svo síðustu myndina, tökustaður er strípibúllan Strawberrys.
Þar mun ég líka fá að leika aðeins, á að vera dyravörður/útkastari : )
Verð í jakkafötum og alles.....ef ég kemst í gömlu jakkafötin mín : /
Gaman gaman gaman.
3 ummæli:
Á svo ekki að jútjúba draslið á síðunni?
Vá hvað ég held þú sért að njóta þín í skólanum :)
kv
M3B
Jú, ég er að fíla þetta í ræmur : )
Skrifa ummæli