Þá er ég að meina allt sem almennt er talið gott efni.
Kannski ekki akkúrat þegar það er sýnt í sjónvarpinu, það þarf jú að koma börnum í rúmið og sinna því heimilislega sem hægt er á þessum stutta tíma milli næturtíma barna og fullorðinna.
Þess vegna er svo fjandi gott að sækja sér efni sem fengið hefur góða dóma og horfa á þegar manni hentar, "ólöglegt" segja sumir, bráðsniðugt segi ég.
Dæmi:
My Name Is Earl.
Gaman þættir sem ég held að hafi ekki verið sýndir í íslensku sjónvarpi (kannski Stöð 2)
Þræl skemmtilegir þættir um aula sem hefur farið illa með marga en fær skyndilega samvisku þegar hann verður fyrir slysi og trúir því að "karmað" sé að refsa honum.
Hann ákveður því að skrifa niður á lista allt það slæma sem hann hefur gert fólki og einsetur sér að bæta fólki upp þann skaða sem hann olli.

Og svo eru það þættirnir sem ég er alveg húkkt á þessa dagana:
Dexter.
Skjár Einn er með þessa þætti en þar sem þeir fóru alveg framhjá mér þá ákvað ég að sækja þá til að sjá sjálfur af hverju þeir eru svona vinsælir.
Og nú á rúmri viku er ég búinn að horfa á fyrstu seríuna og er hálfnaður með seríu 2.
Þræl góðir þættir sem óhætt er að mæla með.

2 ummæli:
my name is Earl voru sýndir á Stöð 2 extra þegar sú stöð byrjaði, en svo "dó# sú stöð og þeir fóru að nota hana til að endursýna þá þætti sem voru sýndir á stöð 2 daginn áður..... En talandi um Dexter.... þá er ég búinn að lesa 3 bækur sem Dexter þættirnir eru gerðir eftir... bækurnar eru frábærar en ég verð að viðurkenna að ég gat ekki fílað þættina eins vel og bækurnar.....en það er mjög algengt hjá mér...yfirleitt finnst mér bækurnar hafa vinninginn.....að vísu þegar við hjónin skelltum okkur í bíó um daginn og horfðum á "slumdog millionaire" (viltu verða milljóner) þá held ég að hún hafi unnið bókina sem var að vísu frábær. bæðevei, ef móar vilja fara á þessa mynd þá á ég boðsmiða sem ég get látið ykkur fá......just call ;-)
Vel boðið, en ég er búinn að sjá Slumdog Millionare og fannst hún fín eins og ég er reyndar búinn að skrifa um hér á síðunni.
En ég verð að játa að ég vissi ekki að það hefðu verið skrifaðar bækur um Dexter vin minn, efast ekki um að þær séu jafnvel enn betri en þættirnir eru.
Oftast er það nú þannig.
Skrifa ummæli