25.7.08

Tónleikar með Damien Rice

Ég fór í gærkveld ásamt Móunum á tónleika Írans Damien Rice í Nasa, ég hef í nokkur ár hlustað á hans tónlist og líkað vel.
Á undan honum á svið var amerísk stúlka sem ég man ómögulega hvað heitir en hún var sæmileg, hafði reyndar fína rödd en tónlistin var svona eitthvað sem maður er búinn að heyra hjá mörgum stelpum á undan henni t.d. Amy McDonald.
Svo kom Írinn á svið og hann var ekki lengi að negla áhorfendur með húmör og svo auðvitað með þunglyndislegri mússíkinni sinni, sem hann gerði óspart grín að í gegnum tónleikana, gaman að sjá tónlistar mann sem líður svona svakalega vel á sviðinu að það var eins og hann væri að spila fyrir stóran vinahóp sinn, auðvitað hefur hann fulla ástæðu til að vera með sjálfstraustið á fullu enda eru þetta þriðju tónleikar hans í Nasa og alltaf uppselt.
Snilldin ein sem sagt og til að gera flott kvöld frábært var boðið til grillveislu hjá M101 fyrir og eftir tónleikana og þakka ég kærlega fyrir mig.

En hér er smá bútur úr laginu Blowers Doughter sem ég tók upp.


5 ummæli:

Unknown sagði...

vá hvað égöfunda þig ekki smá...
en vildi bara láta þig vita að heimsókn minni á þessa stórskemmtilegu síðu þína og vonandi að við sjáumst sem fyrst frændi :D

M4 sagði...

Alltaf gaman að fá frænku í heimsókn : )

Nafnlaus sagði...

Heyrði ég rétt, varst þú að syngja með?
M7

M4 sagði...

: ) gaman að þú skulir minnast á þetta, nei þegar 25 sek eru liðnar af videóinu má heyra í háttvirtum M7 syngja "and so it iiiiissss" beint frá hjartanu og beint inná símann hjá mér : )

M2 sagði...

Hehehe... spæling... ;)