10.7.08

2 dagar í frí : )

Sem er auðvitað hið besta mál, tilhlökkunin er orðin mikil enda hafa undanfarnar vikur verið erfiðar vegna mikillar vinnu og ekki hefur hjálpað að horfa uppá þá sól og blíðu sem hefur ríkt án þess að ég fái notið þess á nokkurn hátt, tja nema um helgar auðvitað.
En talandi um veðrið, þá var ég að kíkja á heimasíðu veðurstofunar og eins og við mátti búast á að byrja að þykkna upp á laugardag og tekur rigningin svo við og verður fyrsta vikan í sumarfríi þess vegna að öllum líkum blaut : )

En hvað vita þessi veðurfræðingar svo sem?

1 ummæli:

M2 sagði...

Argh, ég tók eftir þessu líka! :/
Verðum við bara ekki að treysta á hið forkveðna - „veðurfræðingar ljúga“.

P.s. smá útlits update á herpingnum. :)