Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir þá setti ég hér inn spá fyrir alla leiki í EM, en hvernig gekk?
Er ég spámaðurinn mikli frá Þykkvabæ?
Leiknir voru 31 leikur og var ég með 15 rétta af þeim auk þess að hitta þrisvar á rétta marka tölu, engan veginn ásættanlegt að vera með aðeins 48% rétt og það er nokkuð ljóst að ég verð að bæta mig á næsta HM eftir tvö ár, fylgist með, ekki fara langt : )
3 ummæli:
Að spá 1 - 1 í úrslitaleik mótsins bendir frekar til lítillar þekkingar á reglum FIFA en mikillar spámensku !! Lesa reglurnar fyrir næst mót ;-)
kv. R.Giggs
PS. sé fyrir mér fyrirsagnirnar í Þýskalandi : þjóðirnar skiftu með sér dollunni, spánverjar lokið og við belginn........ fyrir bjórinn of kors.........eeehhehehhee
Ja hérna hr Giggs, ég sem hélt að þú værir spesíalist : )
Já, já, en maður þarf að ná 65% "spái" til að geta kallað sig spámann með stóru S-i. thí híhíhhhííí.....
Eigðu góðan dag,
kv. R.Giggs
Skrifa ummæli