Ég var bara vel ánægður með Skaupið, fullt af fínum atriðum og margir skemmtilegir leikarar.
Ég er mikill aðdáandi Jóns Gnarr og verð ég að segja að atriðið þegar hann riðst inná settið þar sem er verið að taka upp Stundina Okkar og leitar í æði að selnum Snorra fannst mér vera tær snilld : )
Ég hef séð Stundina Okkar nánast á hverju Sunnudegi og svo jafnvel í endursýningu líka og þessir veðurfræðslu sketsar með selnum og Þór veðurfræðingi eru óþolandi.
Ég veit samt um einn föður sem kann örugglega vel að Meta þessa fræðslu : 7
2 ummæli:
Sammála, þetta var klárlega besta atriðið í fínasta skaupi.
M2
ég skildi ekki atriðið, en fannst það samt fyndið. Það þarf ekki mikið til að gleðja vanvitann.
Er ekki enn komin niður á ykkar plan á sunnudögum.
Þetta var eitt af því sem ég hræddist mest.
M7
Skrifa ummæli