Ég veit varla hvað skal segja með áramótaheitið þetta árið annað en að endurtaka bara það síðasta : )
Þess má þó geta að smá árangur náðist í baráttunni en þar sem ég byrjaði eiginlega ekki fyrir alvöru fyrr en í júlí þá er ég bara nokkuð sáttur : )
En hér er áramótaheit síðasta árs og ársins 2008 copy/paste'að
Áramótaheitið 2007
Áramótaheitið mitt eru ekki ólíkt áramótaheitum allra síðustu ára, þ.e.a.s. allra áranna síðan ég var orðin nógu gamall til að átta mig á því að það þykir afskaplega flott að vera fitt: Ég ætla að hætta að éta eins og svín og stunda reglulega hreyfingu.
Þar sem þetta hefur verið áramótaheit, miðsumarsheit og bara venjulegt mánudagsheit oft og mörgum sinnum hlýtur slíkt heit að hafa farið í vaskinn í fjölmörg skipti hingað til. Þá er bara spurningin hvernig maður tæklar vandann í þetta skiptið. Fyrst af öllu ber að vara sig á gildrunum, en þær eru:
afmælisveislur - ca 5 til 8 sinnum á ári
páskar einu sinni á ári- ca 4 dagar
jól allur - desembermánuður
sumarfrí - einn mánuður á ári
föstudagar - 52 stykki
laugardagar - 52 stykki
árshátíðir - tvisvar á ári
þorrablót - tvisvar á ári
Það ber sem sagt að hafa varann á allt árið en sérstaklega þessa ca 178 daga sem mann langar sérstaklega mikið í nammi eða góðan mat.
Einnig þarf að passa sig á öllum þeim afsökunum sem til eru fyrir því að stunda ekki hreyfingu í dag:
Ég var að vinna svo lengi - 5 dagar í viku
Það er rigning úti - mjög oft
Það er hálka og/eða snjór - mun sjaldnar
Það er alltof gott veður - mjög sjaldan
Ég nenni ekki - frekar oft
Ég var að borða - nokkrum sinnum á dag
Svo ber að varast að gera samning við sjálfan sig:
Ég hreyfi mig bara á morgun og hinn í staðinn fyrir að hreyfa mig í dag.
Ég borða bara þeim mun minna á morgun.
Ég er nú hvort eð er búin að eyðileggja vikuna (oft á miðvikudegi). Ég byrja bara á mánudaginn.
Ég er nú hvort eð er búin að eyðileggja mánuðinn (oft fyrir fimmtánda). Ég byrja bara í næsta mánuði.
Ég er nú hvort eð er búin að eyðileggja árið (yfirleitt ekki fyrr en í nóvembar, er nokkuð bjartsýn týpa). Ég byrja bara á næsta ári.
Árið 2007 verður sem sagt árið sem ég hætti að vera sjálfur mér og öllum í kringum mig til háborinnar skammar !
1 ummæli:
Viltu ræða þetta eitthvað frekar?
M7
Skrifa ummæli