Þegar ég vaknaði um morguninn var skollið á skíta veður og í fréttum útvarpsins var sagt frá því að vegurinn til Keflavíkur væri lokaður vegna ófærðar og lélegs skyggnis.
Alveg er þetta týbíst hugsaði ég, ég hlít að vera seinheppnasti ferðalangur í sögu Þykkbæinga !
Fór að hugsa mér til hreyfings um kl 14 og gekk ferðin vel til flughafnarinnar, þrátt fyrir að bílum hafi verið hleypt í hollum til Keflavíkur.
Eftir að hafa böðlast yfir snjóskafla og dottið þrisvar sinnum á hausinn haldandi á tveimur töskum og golfpoka komst ég lafmóður og hóstandi úr mér lungun inn í flugstöð þar sem ég tékkaði mig inn.
Vélin átti að fara í loftið kl 17:25 en tók flugið á endanum kl 21: 30 : )
Ókyrrð var þó nokkur fyrsta klukkutímann en ekkert sem fokkar í nagla eins og mér.
Loks var lent hér í Orlando kl 05:20 að ísl. tíma 12:20 að staðartíma.
Í gær fór ég í heljarinnar verslunarleiðangur og keypti allt sem tæknióðan mann langar í, IPhone og Full HD videotökuvél t.d.
Ég fór í Edwin Watts golfverslun með heljarinnar lista yfir kylfur til að prufa sem golf kennarinn minn hafði útbúið fyrir mig, nú auðvitað verða líklega einhver vandræði með að fá kylfurnar sem ég féll gersamlega fyrir, a.m.k. nægjanlega snemma til að ég geti notað þær að einhverju viti áður en við förum heim, gæti farið svo að ég láti hreinlega senda þær með pósti !
En talandi um golf þá fórum við tengdapabbi í golf í dag á velli sem heitir Highlands Reserve Golf Club og er í c.a 5 mín akstri héðan þar sem við búum.
Fínasti völlur og ekki var veðrið að spilla fyrir, reyndar þegar við vorum á fyrsta teig þá var nánast alskýað en mjög fjótlega rofaði til og svo var bara alveg heiðskýrt og steik, og já ég sólbrann að sjálfsögðu : )
Og skorið ?
Eigum við ekki bara að segja að ég var sáttur : )
13. braut.

Allstaðar eru appelsínutré og undir þeim appelsínuhrúgur.
Tengdapabbi og Skorsku feðgarnir sem voru með okkur í holli, hressir gaurar og talsvert betri en við í golfi : )
4 ummæli:
Heppinn!!
við erum ekkert abbó
andsk..., djöf...., helv....
M7
Fífl! Djöfluls drasl!!!
Ég er ekkert öfundsjúkur.
M2
já ég hugsa til þín þegar ég skafa rúðurnar í fyrramáli #$%&/&%$#$%&/()(/&%%&/ :-)
M3
Já það gleður mig að sjá að þið samgleðjist með mér elsku vinir : )
Skrifa ummæli